Telur að skotið hafi verið á dráttarvél: „Hefndargjörningur vegna ágreinings“ Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 23. október 2021 22:33 Íbúi á Vatnsleysuströnd segist þess fullviss að skotið hafi verið á dráttarvél í hans eigu með þeim afleiðingum að rúða brotnaði. Hefur hann ákveðna aðila grunaða, en lögregla rannsakar nú málið. Virgill Scheving Einarsson á þrjár jarðir á Vatnleysuströnd og býr á Efri-Brunnastöðum I. Hann vaknaði við mikinn hávaða í nótt og sá í kjölfarið bíl keyra af lóðinni. Dráttarvél Virgils hafði verið skemmd og telur hann að skotið hafi verið á dráttarvélina.
Virgill segir að þrjú gler á dráttarvélinni hafi verið brotin og tjónið hlaupi á nokkrum hundruðum þúsunda. Hann sé þó sem betur fer tryggður. Lögreglan hafi komið í kjölfarið og eytt töluverðum tíma í að skoða vettvanginn. Virgill Scheving Einarsson, landeigandi á Vatnsleysuströnd heldur því fram að skotið hafi verið á dráttavél hans. Hann kallaði lögreglu til, en ekkert liggur enn skýrt fyrir um málavexti. „Lögreglan var hér í nótt en þeir sáu ekkert nema að bara að það var brotin hliðin úr dráttarvélinni. Það eru þrjú gler sem að voru brotin. Þeir halda að það hafi verið með sleggju en við höldum að það hafi verið með afsagaðri haglabyssu, bara úr bíl, látið vaða í hliðina,“ segir Virgill. Lögreglan á Suðurnesjum segir málið til rannsóknar Lögreglan á Suðurnesjum staðfestir í samtali við fréttastofu að málið sé til rannsóknar. „Það var farið í eignarspjöll þarna á Vatnsleysuströnd í nótt en meira hef ég ekki um þetta að segja,“ segir varðstjóri Lögreglunnar á Suðurnesjum í samtali við fréttastofu. Varðstjórinn segir að ekkert bendi til þess að skotið hafi verið á dráttarvélina. Málið sé ekki rannsakað með tilliti til mögulegrar skotárásar. Grunar ákveðna aðila Virgill er myrkur í máli í samtali við fréttastofu og vill lítið gefa upp um mögulegar ástæður skemmdarverksins, fyrr en hann ræðir aftur við lögregluna. Hann segist þó hafa ákveðna aðila í huga og telur að um hefndargjörning hafi verið að ræða. „Það er hefndargjörningur vegna ágreinings þar sem að menn hafa staðið á sínum rétti og undið ofan af gömlum ósiðum. Það var bara sett harka í þetta. Það er bara það, að land sem maður er þinglýstur á, það á maður og ekkert meira. Ef einhverjir vilja fara á hverjum degi yfir land sem þeir eiga ekki þá stoppar maður það af.“
Lögreglumál Vogar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Sniglar hægja á umferð Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Innlent Fleiri fréttir Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Sjá meira