HK fær liðsstyrk

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, ásamt nýjum leikmanni liðsins, Örvari …
Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, ásamt nýjum leikmanni liðsins, Örvari Eggertssyni. Ljósmynd/HK

Örvar Eggertsson hefur samið við HK í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu. Samningurinn er til þriggja ára.

Örvar, sem er 21 árs gamall, kemur frá Fjölni, sem féll úr Pepsi Max-deildinni á liðnu tímabili. Stoppið var því stutt hjá Fjölni þar sem hann kom til liðsins frá Víkingi síðastliðið vor.

Örvar spilar sem kantmaður og bakvörður og á 51 leik að baki í efstu deild, þar sem hann hefur skorað tvö mörk.

Hann vakti athygli sumarið 2019 þegar hann varð bikarmeistari í hástökki í bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands utanhúss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert