Áunnið ónæmi gæti varað ár eða áratugi Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. nóvember 2020 19:29 Maður fær blóðvökva úr einstakling sem hefur jafnað sig af Covid-19. epa/Cati Cladera
Rannsóknarniðurstöður vísindamanna við La Jolla Institute of Immunology í Bandaríkjunum vekja vonir um að áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 geti varað í mörg ár eða jafnvel áratugi. Flestir þeirra sem tóku þátt í rannsókn stofnunarinnar bjuggu enn að nógu góðu ónæmissvari átta mánuðum eftir smit til að vinna á veirunni og koma í veg fyrir veikindi. Niðurstöðurnar hafa ekki verið ritrýndar en samkvæmt New York Times er um að ræða yfigripsmestu rannsókn á mótefnasvari líkamans við nýju kórónaveirunni sem gerð hefur verið. Að sögn Shane Crotty, sem fór fyrir rannsóknarteyminu, benda niðurstöðurnar til þess að þeir sem hafa áður veikst af Covid-19 séu ónæmir fyrir alvarlegum veikindum í mörg ár eftir fyrstu greiningu. Þá eru þær í takti við aðra nýlega uppgötvun; að þeir sem smituðust og veiktust af SARS, sem önnur kórónaveira veldur, búi enn yfir mikilvægum ónæmisfrumum 17 árum eftir smit. Endursýkingar sárafáar, enn sem komið er Vísindamenn hafa haft áhyggjur af því hversu lengi áunnið ónæmi gegn SARS-CoV-2 mun vara. Niðurstöður eldri rannsóknar við Columbia University bentu til þess að það entist stutt og að einstaklingar gætu smitast og veikst innan árs frá upphaflegu smiti. Allur er varinn góður.epa/Alex Plavevski „Það sem við þurfum að hafa í huga er hvort endursýkingar verða áhyggjuefni,“ segir Jeffrey Shaman, sem fór fyrir Columbia-rannsókninni. „Og að sjá sönnunargögn þess efnis að mótefnasvarið sé viðvarand og öflugt, að minnsta kosti miðað við þennan tímaramma, er mjög jákvætt.“ Enn sem komið er hafa afar fáir smitast tvisvar af SARS-CoV-2. En það er erfitt að spá fyrir um hversu lengi ónæmið mun raunverulega vara, þar sem vísindamenn vita ekki ennþá hversu sterkt ónæmissvar þarf til að vernda fólk fyrir veirunni. Rannsóknir benda hins vegar til þess að það kunni að þurfa aðeins lítið magn af svokölluðum T og B frumum til að verja þá sem áður hafa smitast. Til þessa hafa þáttakendur í rannsókn Crotty og félaga myndað áðurnefndar frumur í miklu magni. Um var að ræða 185 einstaklinga, karla og konur, á aldrinum 19 til 81 árs. Meirihluti fólksins fékk væg einkenni. Ítarlega frétt um málið er að finna á nytimes.com.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent „Kastljós á ekki að vera Staksteinar“ Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Skúli Tómas sinnir sjúklingum af og til Innlent Halla Hrund áfram efst Innlent Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Innlent Efstar með ómarktækan mun á milli sín Innlent Fleiri fréttir Grænlendingar segja sig úr Norðurlandaráði Skýrustu merkin um lofthjúp um bergreikistjörnu til þessa Enn og aftur tafir á málaferlum gegn Trump Umfangsmestu árásir Rússa í nokkrar vikur Trump blótaði þegar Daniels lýsti meintu samneyti þeirra Hrina árása á þýska stjórnmálamenn veldur áhyggjum Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Annar hvirfilbylurinn í Oklahoma á rúmum mánuði Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Skotárás við heimili Drake Stormy Daniels í dómsal með Trump Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Reynt að siga lögreglu á vitni í málinu gegn Trump Fundu hlerunarbúnað í fundarherbergi ráðherra Pútín hefur fimmta kjörtímabilið með meiri völd en áður Sagðist saklaus af því að hafa drepið með eitruðum sveppum Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Geimskoti Starliner var frestað í nótt Segja nýjar reglur um merkingar blekkingarleik laxeldisfyrirtækja Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Bein útsending: Starliner ber geimfara til geimstöðvarinnar Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sjá meira