2,5 milljóna sekt fyrir endurtekin umferðarlagabrot Atli Ísleifsson skrifar 3. mars 2021 14:30 Konan var stöðvuð af lögreglu bæði á Selfossi og Reykjavík líkt og rakið er í ákæru sem var í sjö liðum. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt konu til að greiða 2,5 milljónir króna í sekt til ríkissjóðs fyrir endurtekin umferðarlagabrot eftir að hafa ítrekað ekið bíl, ýmist undir áhrifum ávana- eða fíkniefna eða slævandi lyfja. Ákæran var í sjö liðum, en brotin voru framin bæði í Reykjavík og á Selfossi á tímabilinu frá júní 2019 til júní 2020.
Konan var jafnframt til fimm ára ökuréttissviptingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, alls rúmar tvær milljónir króna. Samkvæmt sakarvottorði hafði konan áður gerst sek um brot gegn umferðarlögum. Í dómnum kemur fram að matsgerðir rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði sýni fram á að konan hafi verið óhæf til að stjórna ökutæki örugglega í þeim tilvikum sem rakin voru í ákæru. Það hafi sömuleiðis verið samdóma álit þeirra lögreglumanna sem höfðu afskipti af konunni í þessi sjö skipti að hún hafi ekki verið nokkru ástandi til að aka bíl. Konan var sömuleiðis dæmd fyrir skjalabrot fyrir að hafa ekið bíl með röngu skráningarmerki að framan. Bar hún því við að bílnum hafi verið stolið og þegar hann hafi fundist á ný hafi hún ekki gert sér greint fyrir því að hún væri á röngum skráningarmerkjum. Dómari tók þó ekki slíkt til greina þar sem ákvæði umferðarlaga geri ráð fyrir að eiganda eða umráðamanni bíls beri ábyrgð á skráningu þess í ökutækjaskrá og að skráningarmerki sé sett á það áður en það sé tekið í notkun. Vottorð gefið út löngu síðar Konan fór fram á að verða ekki svipt ökurétti með vísun í umferðarlög þar sem kveðið er á að ökumaður skuli ekki beittur viðurlögum, ef hann hafi meðferðis við stjórn ökutækis læknisvottorð sem sýni fram á að hann sé haldinn tilteknum sjúkdómi eða ástandi sem skýri neyslu efna sem mælist í blóði og þá verið hæfur til að stjórna bílnum að mati læknis. Konan hafi hins vegar ekki uppfyllt neitt skilyrðanna sem þar er kveðið á um og vottorð geðlæknis dugi ekki til að sleppa við ökuréttarsvipitingu, enda hafi umrætt vottorð verið gefið út löngu eftir brot konunnar. Þar sem um ítrekað brot hafi verið að ræða af hálfu konunnar og með hliðsjón af fjölda brotanna var svipting hennar ákveðin fimm ár frá maí 2020 að telja. Konunni er gert að greiða sektina til ríkissjóðs, 2,5 milljónir króna, innan fjögurra vikna frá uppkvaðningu dómsins, en ella sæti hún fangelsi í 68 daga.
Dómsmál Reykjavík Árborg Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Quang Le hakkaður á Facebook Innlent Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Erlent Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Erlent Hver er Kári Hansen? Innlent Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Erlent Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Innlent Aukin virkni í gosinu Innlent Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Innlent Umferðartafir vegna elds í tengivagni Innlent Fleiri fréttir Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Hver er Kári Hansen? Nokkurra bíla árekstur á Miklubraut Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Umferðartafir vegna elds í tengivagni Heimta hundrað milljóna króna tryggingu Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast Gæsluvarðhald beggja framlengt Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Leggja til kröfu um sólarsellur á þaki nýbygginga Úrskurðaður í síbrotagæslu eftir ofsaaksturinn Svona var Pallborðið með Helgu Þóris og Eiríki Inga Birna sett sýslumaður á Vesturlandi Segir ekkert „dramatískt“ að frétta af eldgosinu Umdeildu frumvarpi um lagareldi breytt Matvælaráðherra segir fiskeldisfrumvarp mikla bragarbót fyrir umhverfið Quang Le hakkaður á Facebook Bein útsending: Kynna skýrslu um aðra orkukosti Aukin virkni í gosinu Grænt ljós á Láka og Flata en ekki Libyu Umboðsmaður krefst skýringa á nýju lögreglumerki Þrír handteknir fyrir ógnandi hegðun í þremur aðskildum málum Lítilsvirðing gagnvart konum eigi ekki að líðast hjá RÚV Spurningar til Baldurs minni á árið 1980 Veðmálaauglýsingar með stærstu stjörnum landsins „fá að grassera“ Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst í síðasta lagi á fimmtudag Aðalsöngvari the Commitments stígur á svið í Háskólabíói Samningar við sjómenn til níu ára í höfn Sjá meira