Blóðugur dagur í Mjanmar Elín Margrét Böðvarsdóttir og Samúel Karl Ólason skrifa 20. febrúar 2021 15:25 Dagurinn í dag er sagður einn sá blóðugasti til þessa en mótmæli hafa staðið yfir í um tvær vikur eftir að herinn hrifsaði til sín völdin í landinu. EPA/KAUNG ZAW HEIN Minnst tveir eru látnir eftir að hermenn hófu skothríð á mótmælendur sem voru að mótmæla valdaráni hers Mjanmar. Fregnir herma að tugir hafi særst í skothríðinni sem hófst nærri hafnarsvæði Mandalay, næst stærstu borg ríkisins.
Harka hermanna gegn mótmælendum hefur aukist verulega á undanförnum dögum, samhliða auknum ágangi mótmælenda sem hafa ekki látið af mótmælum þrátt fyrir aukna hörku hermanna. Blaðamaður AP fréttaveitunnar segir að hermenn hafi byrjað að skjóta á mótmælendur með gúmmíkúlum og beitt þá táragasi auk þess sem nokkrir hafi verið fluttir á sjúkrahús. Annar hinna látnu er sagður hafa verið skotinn í höfuðið og hafi látist samstundis. Hinn var skotinn í bringuna og lést af sárum sínum á leiðinni á sjúkrahús að því er fréttamiðillinn Frontier Myanmar greinir frá og haft er eftir í frétt AP. Fjölmargir hafa birt myndir og myndbönd frá mótmælunum á samfélagsmiðlum, þeirra á meðal blaðamenn og aðgerðasinnar fyrir mannréttindum. #Myanmar : this was the scene at a market in #Myitkyina (#Kachin) earlier today. Riot police cracked down on a anti-coup rally, beating protesters as they tried to run away. #WhatsHappeningInMyanmar pic.twitter.com/0gKLRcmOGW— Thomas van Linge (@ThomasVLinge) February 19, 2021 Blaðamaður AP sem varð vitni að átökunum á vettvangi segir að um fimm hundruð lögregluþjónar og hermenn hafi lagt leið sína niður að hafnarsvæðinu eftir að starfsfólk sem vinnur við höfnina gengu til liðs við mótmælendur og hafa hótað að leggja niður störf ef herinn gefst ekki upp og hleypir lýðræðslega kjörnum stjórnvöldum aftur til valda. Bæði mótmælendur og íbúar á svæðinu hafa séð sig knúna til að flýja vegna ofbeldis af hálfu hermanna. Hópur blaðamanna hefur sömuleiðis neyðst til að flýja eftir að verða fyrir aðkasti af hálfu öryggissveita sem meðal annars munu hafa beitt táragasi gegn blaðamönnum. Mótmælendur minnast Mya Thwe Thwe Khaing sem var skotin til bana fyrr í þessum mánuði. EPA/LYNN BO BO Þá hafa þúsundir mótmælenda í tveimur stærstu borgum landsins komið saman og vottað Mya Thwet Thwet Khine virðingu sína en Mya var skotin til bana í höfuðborginni Naypyitaw þann 9. Febrúar, tveimur dögum fyrir tuttugu ára afmælisdaginn sinn. Andlát hennar er fyrsta dauðsfallið sem staðfest hefur verið í tengslum við mótmælin sem brutust út í kjölfar valdaránsins. Fréttastofa Reuters hefur eftir viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki að dagurinn í dag sé líklega sá blóðugasti til þessa, en mótmælin hafa staðið yfir í um tvær vikur.
Mjanmar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Sjá meira