Stjarnan vann sterkan 24:22-sigur á ÍBV þegar liðin mættust í 2. umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik í Vestmannaeyjum í dag og hélt þar með toppsæti deildarinnar.
ÍBV hóf leikinn betur og var með forystu stærstan hluta fyrri hálfleiks. Mest náðu heimakonur fjögurra marka forystu, 12:8, en frábær endasprettur Stjörnunnar sá til þess að staðan var jöfn í leikhléi, 12:12.
Í upphafi síðari hálfleiks komst Stjarnan yfir í fyrsta skipti í leiknum með því að skora fyrsta mark hálfleiksins.
Eftir að ÍBV jafnaði metin í 15:15 hóf Stjarnan að sigla ögn fram úr og náði mest fjögurra marka forystu, 22:18, þegar tæpar sjö mínútur voru eftir af leiknum.
ÍBV reyndi hvað það gat til þess að koma sér aftur almennilega inn í leikinn en náði mest að minnka muninn niður í tvö mörk og reyndist tveggja marka sigur Stjörnunnar niðurstaðan.
Stjarnan er því áfram með fullt hús stiga, 4 stig, á toppi deildarinnar að loknum tveimur leikjum. ÍBV er í fimmta sæti með 2 stig.
Helena Rut Örvarsdóttir var markahæst í leiknum með níu mörk og rétt á eftir henni var Lena Margrét Valdimarsdóttir með átta mörk.
Darija Zecevic átt frábæran leik í marki Stjörnunnar og varði 14 skot af þeim 36 sem hún fékk á sig, sem er rétt tæplega 39 prósent markvarsla.
Markahæst í liði ÍBV var Ásta Björt Júlíusdóttir með sjö mörk.
Mörk ÍBV: Ásta Björt Júlíusdóttir 7, Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir 4, Sunna Jónsdóttir, Elísa Elíasdóttir 3, Harpa Valey Gylfadóttr 2, Birna Berg Haraldsdóttir 2, Marija Jovanovic 1.
Varin skot: Marta Wawrzykowska 8, Dröfn Haraldsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Helena Rut Örvarsdóttir 9, Lena Margrét Valdimarsdóttir 8, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Britney Cots 2, Anna Karen Hansdóttir 1.
Varin skot: Darija Zecevic 14.