Tap hjá deildarmeisturunum og Keflavík niðurlægði KR Anton Ingi Leifsson skrifar 23. september 2020 21:09 Breiðablik vann góðan sigur í kvöld. vísir/bára
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra stiga sigur á deildarmeisturum Vals í kvöld, 71-67, í fyrstu umferð Dominos-deildar kvenna. Leikurinn var ansi jafn og skemmtilegur nær allan leikinn. Breiðablik var einu stigi yfir í hálfleik, 37-36, og hélt út eftir rosalegar lokamínútur. Jessie Coera var stigahæst hjá Breiðabliki með 25 stig. Isabella Ósk Sigurðardóttir gerði tólf stig og tók átján fráköst. Hildur Björg Kjartansdóttir, sem kom frá KR í sumar, var stigahæst hjá Val með sextán stig. Hún tók einnig tólf fráköst. Dagbjört Dögg Karlsdóttir gerði fjórtán stig. Nýliðar Fjölnis rúlluðu yfir Snæfell á heimavelli. Lokatölur urðu 91-60 eftir að Fjölnir voru 39-31 yfir í hálfleik þrátt fyrir að Snæfell hafi verið 21-10 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Fiona Eilish O'Dwyer gerði tuttugu stig fyrir Fjölni en hún tók að auki sextán fráköst. Emma Sóldís Svan Hjördísardóttir skoraði átján stig. Iva Georgieva var stigahæst hjá Snæfell með átján stig. Anna Soffía Lárusdóttir gerði fjórtán stig og tók fjórtán fráköst en það er ljóst að það er langur vetur framundan í Stykkishólmi. Keflavík rúllaði yfir KR í Reykjanesbæ. Keflavík vann með 42 stiga mun, 114-72, eftir að hafa verið 55-34 yfir í leikhlé. Keflvíkingar gáfu ekki tommu eftir í síðari hálfleik og unnu alla fjóra leikhluta kvöldsins. Daniela Wallen Morillo gerði 37 stig fyrir Keflavík. Að auki tók hún ellefu fráköst og gaf níu stoðsendingar. Anna Ingunn Svansdóttir kom næst með sautján stig. Annika Holopainen var í sérflokki hjá KR. Hún gerði 43 stig og tók tíu fráköst. Hún skoraði þar af leiðandi tæplega 60% af stigum KR í kvöld.
Dominos-deild kvenna Breiðablik Valur Keflavík ÍF KR Mest lesið Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Körfubolti Í beinni: Njarðvík - Þór Þ. | Oddaleikur í Ljónagryfjunni Körfubolti Heimsmet Japanans gildir ekki Sport Í beinni: Keflavík - Breiðablik | Blikar fara suður með sjó Íslenski boltinn Krókur Liverpool á móti bragði Enski boltinn Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Hamrén hafnaði 388 milljóna samningi Fótbolti „Eins og að fá hníf í bakið“ Sport Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? Íslenski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: Njarðvík - Þór Þ. | Oddaleikur í Ljónagryfjunni Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum