Telur heilkennið ekki endilega ástæðu til að bólusetja öll börn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 20:30 Valtýr Thors, barnasmitsjúkdómalæknir. Vísir/Arnar Halldórsson Ekkert barn hefur greinst með svokallað bráðabólguheilkenni í kjölfar kórónuveirunnar hér á landi, en tilfellum hefur fjölgað erlendis. Heilkennið getur verið lífshættulegt en barnalæknir segir það þó ekki endilega vera ástæðu til að bólusetja börn við kórónuveirunni líkt og sakir standa.
Greint var frá því í gær að sjö ára íslenskur drengur í Svíþjóð hefði veikst lífshættulega í haust af svokölluðu bráðabólguheilkenni sem rakið er til kórónuveirunnar. Hann var fullkomlega heilbrigður áður en hann fékk veiruna en er í dag langveikur, að sögn móður hans. Heilkennið leggst á börn og talið er að um fimmtíu slík tilfelli hafi komið upp í Svíþjóð. „Þetta er bólguviðbragð í líkamanum sem leggst á mörg líffærakerfi og veldur oft talsvert miklum veikindum. Þetta er í raun og veru nýtt fyrirbæri sem hefur komið fram á sjónarsviðið eftir að covid-veiran braust fram,“ segir Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir á Barnaspítala hringsins. Hann segir að tilfelli hafi verið að koma upp í nágrannalöndum og að um eitt af hverjum fimm þúsund börnum geti þróað með sér heilkennið í kjölfar covid-sýkingar. „Ég held að þetta undirstriki fyrst og fremst það að við þurfum að bera virðingu fyrir þessari kórónuveiru og alls ekki vanmeta hvað hún getur gert. Hún hefur valdið gríðarlegum veikindum úti um allan heim. Sem betur fer höfum við verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá börn veikjast alvarlega. Mjög fá börn raunar,“ segir Valtýr, aðspurður hvort heilkennið undirstriki mikilvægi þess að bólusetja börn við kórónuveirunni. Börn fædd 2006 og síðar munu ekki fá bóluefni við veirunni, samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðherra. „Ég held að þetta eitt og sér sé ekki endilega lóð á þær vogarskálar að það eigi að bólusetja öll börn gegn covid.“ Valtýr segir að ef snögglega sé gripið til meðferðar þá gangi sjúkdómurinn oftast yfir á dögum eða vikum. „Þó eru jafnan oft einhvers konar eftirköst sem getur tekið vikur eða mánuði að ganga alveg til baka.“ Hver eru fyrstu einkenni og hvernig veit fólk hvort það eigi að leita læknisaðstoðar? „Það getur verið býsna flókið af því að einkennin eru margs konar en flest börn fá hita og einkenni frá meltingarveginum, oftast niðurgang en líka uppköst. Það er mikill slappleiki og almennt talsvert mikil veikindi. Það sem fólk á að gera núna sem endranær er að ef það hefur áhyggjur af veikindum barna sinna er að láta lækni kíkja á þau.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Bólusetningar Börn og uppeldi Tengdar fréttir Bráðabólguheilkenni ekki komið upp hjá barni hér á landi Sóttvarnalæknir segist ekki vita til þess að bráðabólguheilkenni hafi komið upp hjá barni hér á landi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um sjö ára íslenskan dreng í Svíþjóð sem veiktist lífshættulega af bráðabólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 30. nóvember 2020 11:46 Sjö ára drengur veiktist lífshættulega eftir að hafa fengið Covid-19 Sjö ára íslenskur drengur veiktist lífshættulega nú í haust af bráða- bólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 29. nóvember 2020 18:04 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Sjá meira
Bráðabólguheilkenni ekki komið upp hjá barni hér á landi Sóttvarnalæknir segist ekki vita til þess að bráðabólguheilkenni hafi komið upp hjá barni hér á landi. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var fjallað um sjö ára íslenskan dreng í Svíþjóð sem veiktist lífshættulega af bráðabólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 30. nóvember 2020 11:46
Sjö ára drengur veiktist lífshættulega eftir að hafa fengið Covid-19 Sjö ára íslenskur drengur veiktist lífshættulega nú í haust af bráða- bólguheilkenni í tengslum við Covid-19. 29. nóvember 2020 18:04