„Held að Cessa hafi verið extra ánægð að fá að hitta Neuer“ Sindri Sverrisson skrifar 2. júní 2023 10:00 Leikmenn karla- og kvennaliðs Bayern fögnuðu með stuðningsmönnum á Marienplatz í München á sunnudaginn. Hér er Lucas Hernandez með Glódísi Perlu Viggósdóttur. Getty/Nathan Zentveld Glódís Perla Viggósdóttir segir ánægjulegt hve samheldnin sé mikil hjá þýska stórveldinu Bayern München en leikmenn kvenna- og karlaliðs félagsins fögnuðu saman meistaratitlum sínum um liðna helgi.
Karlalið Bayern varð meistari með hádramatískum hætti síðastliðinn laugardag og stóð svo heiðursvörð fyrir kvennaliðið eftir að það tryggði sér sinn meistaratitil á sunnudag, með 11-1 stórsigri á Turbine Potsdam. „Það var ótrúlega gaman og sýnir hvað klúbburinn er að reyna að lyfta kvennaknattspyrnunni og gera þetta að einni heild, en ekki tveimur deildum eins og þetta er á mörgum stöðum. Það er bara frábært. Gaman að þeir nenntu að koma og horfa, og svo fórum við öll saman niður í miðbæ að fagna þessu saman á svölunum þar. Þetta var frábær dagur í alla staði,“ segir Glódís í viðtali við Svövu Kristínu Gretarsdóttur. Leikmenn karlaliðs Bayern München voru á meðal áhorfenda þegar kvennaliðið varð Þýskalandsmeistari á sunnudaginn, degi á eftir karlaliðinu.Getty/Sven Hoppe Aðspurð hvernig væri að umgangast heimsfrægar stórstjörnur á borð við Thomas Müller, Manuel Neuer og fleiri í karlaliði Bayern svarar Glódís: „Þeir eru langflestir bara mjög vinalegir. Ég er reyndar ekki mikið að tala við þá. Það eru aðallega þýsku stelpurnar sem eru eitthvað að spjalla. En þetta var bara gaman og ég held að Cessa [Cecilía Rán Rúnarsdóttir, liðsfélagi Glódísar] hafi verið extra ánægð að fá að hitta Neuer.“ Hin 19 ára Cecilía Rán ætti alla vega að geta lært eitt og annað af hinum 37 ára Neuer sem meðal annars hefur orðið heimsmeistari með Þýskalandi, og tvöfaldur Evrópumeistari og ellefufaldur Þýskalandsmeistari með Bayern – stórveldinu sem Glódís hefur nú hjálpað að bæta við í verðlaunasafnið: „Strákarnir voru að vinna í ellefta skiptið í röð og við í fimmta sinn í heildina. Þetta er algjört stórveldi og bara ótrúlega gaman að vera partur af þessu, og upplifa þessa rosalegu stemningu sem myndast þegar vel gengur, eins og núna þegar við unnum tvöfalt.“ Klippa: Glódís um fagnaðarlæti beggja liða Bayern
Þýski boltinn Tengdar fréttir Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. 31. maí 2023 07:00 „Tók meira leiðtogahlutverk og naut mín mjög vel“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, lék hverja einustu mínútu á nýafstaðinni leiktíð, þegar Bayern München varð Þýskalandsmeistari í fimmta sinn. Hún segir hlutverk sitt sem leiðtogi hjá Bayern hafa stækkað. 1. júní 2023 10:00 Mest lesið „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Íslenski boltinn Liverpool nær samkomulagi um Slot Enski boltinn Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Enski boltinn Stjarnan skellti tvisvar á Belichick: „Það er eins gott að þetta sé ekki grín“ Sport Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Enski boltinn „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Handbolti Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Körfubolti „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Handbolti Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum Handbolti Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Fótbolti Fleiri fréttir „Auðvitað voru þetta ekki gleðifréttir“ Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Ungstirnið nýtti tækifærið og skaut Real nær titlinum Íslendingarnir nálgast fallið Titilbaráttan endanlega úti eftir tap Söru og stallna Íslendingarnir áberandi í jafntefli Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Marta hættir í landsliðinu eftir Ólympíuleikana Víkingar fengu góða sumargjöf Leikmaður Newcastle tók meirapróf Amnesty segir að FIFA rúlli út rauða dreglinum fyrir Sádana Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Rashford: Nú er nóg komið Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz „Frábær úrslit fyrir okkur og félagið“ „Fyrst og fremst var þetta vinnuframlag frá öllum“ Ivan Toney á innkaupalista Manchester United Júlíus Magnússon með sitt fyrsta mark fyrir Fredrikstad Magnaðasta mark sumarsins á fyrsta degi þess? Einstefna í Brighton Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok Bikarmeistararnir örugglega áfram eftir smá hikst 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Sjá meira
Dreymir um að vinna Meistaradeildina og er ekki á förum frá Bayern „Ég vil bara vinna meistaradeildina“, segir Glódís Perla Viggósdóttir sem fagnaði á dögunum þýska meistaratitlinum með liði sínu Bayern München. 31. maí 2023 07:00
„Tók meira leiðtogahlutverk og naut mín mjög vel“ Glódís Perla Viggósdóttir, landsliðsfyrirliði í fótbolta, lék hverja einustu mínútu á nýafstaðinni leiktíð, þegar Bayern München varð Þýskalandsmeistari í fimmta sinn. Hún segir hlutverk sitt sem leiðtogi hjá Bayern hafa stækkað. 1. júní 2023 10:00