Ítalía leikur til úrslita

Ítalía vann riðilinn sinn í Þjóðadeildinni.
Ítalía vann riðilinn sinn í Þjóðadeildinni. AFP

Ítalía er komin í úrslit Þjóðadeildar UEFA í knattspyrnu eftir 2:0-sigur á Bosníu í kvöld er riðlakeppninni lauk.

Andrea Belotti og Domenico Berardi skoruðu mörk gestanna enda á toppi 1. riðilsins með 12 stig, stigi meira en Holland. Belgar, Frakkar og Spánverjar eru hin þrjú liðin sem leika til úrslita á næsta ári.

Úr A-deildinni féllu svo einnig fjögur lönd; Bosnía, Ísland, Svíþjóð og Sviss.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert