Telur allar líkur á að nýja afbrigðið komi til Íslands Fanndís Birna Logadóttir skrifar 27. nóvember 2021 12:20 Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á Landspítala, segir tímaspursmál hvenær nýja afbrigðið greinist á Íslandi. Vísir/Egill Yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítala segir allar líkur á að nýtt afbrigði kórónuveirunnar, Ómíkron, komi til Íslands en bindur vonir við að bólusetningar muni veita viðunandi vernd. Afbrigðið breiðist hratt út og er talið hafa greinst í Þýskalandi og Tékklandi í dag.
Afbrigðið greindist fyrst í Suður Afríku fyrr í mánuðinum og gaf Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin nýja afbrigðinu heitið Ómíkron í vikunni. Um er að ræða næsta afbrigðið á eftir Delta sem stofnunin hefur teljandi áhyggjur af. Sóttvarnalæknir hefur ráðið íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn COVID-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu vegna útbreiðslunnar. Björn Rúnar Lúðvíksson, yfirlæknir á ónæmisfræðideild Landspítalans, segir lítið vitað um afbrigðið á þessum tímapunkti en um 30 stökkbreytingar er að finna á gaddapróteini veirunnar. Afbrigðið hefur dreifst hratt út í Suður-Afríku og víðar, meðal annars í Evrópu. „Það bendir óbeint til þess að hún gæti hugsanlega verið meira smitandi en það á eftir að fá það staðfest þannig við vitum það ekki almennilega enn þá. Við vitum heldur ekki hvort að bóluefnin sem nú eru í gangi munu virka vel gegn veirunni,“ segir Björn. Það eigi eftir að koma í ljós eftir því sem tíminn líður hversu mikla vernd bóluefnin sem nú eru á markaði veita. Þá séu önnur bóluefni í þróun gegn nýjum afbrigðum veirunnar. „Ég tel nú að það muni vernda okkur að einhverju leiti, sérstaklega þá sem eru búnir að fá örvunarskammtinn, en hversu mikla vernd það veitir miðað við Delta afbrigðið, það er of snemmt að segja til um það,“ Hann bendir þó á að í Suður Afríku og víðar er bólusetningarhlutfallið heldur lágt en veiran fær fleiri tækifæri til að fjölga sér í slíkum kringumstæðum og er þá hætta á að nýir stofnar verði til. Meðan svo er er áfram möguleiki að veiran breiði frekar úr sér. Þannig þetta gæti allt eins komið hingað til landsins? „Ég held að það séu bara allar líkur á því að það muni gera það á einhverjum tímapunkti en vonandi mun það gerast þegar sem flestir eru búnir að fá örvunarbólusetningu, þannig að möguleiki veirunnar til að ná sér almennilega á strik mun þar af leiðandi væntanlega vera minni,“ segir Björn.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Suður-Afríka Bólusetningar Tengdar fréttir Ræður Íslendingum frá ferðalögum til ákveðinna landa Afríku vegna Ómíkron Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn COVID-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu. 27. nóvember 2021 11:07 Nýja kórónuveiruafbrigðið fær nafnið Ómíkron Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið nýjasta afbrigði kórónuveirunnar heiti gríska bókstafsins Ómíkron. Stofnunin gefur einungis afbrigðum sem hún hefur teljandi áhyggjur af nafn. 26. nóvember 2021 20:11 Umræða um bólusetningarskyldu eðlilegri ef örvunarskammturinn reynist vel Ef örvunarskammtur af bóluefni veitir verulega vörn gegn smiti eru komnar faglegar forsendur til að ræða bólusetningarskyldu að sögn sóttvarnalæknis. 22. nóvember 2021 13:38 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Tuga enn saknað og 55 látnir Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Sjá meira
Ræður Íslendingum frá ferðalögum til ákveðinna landa Afríku vegna Ómíkron Vegna hraðrar útbreiðslu Ómíkron-afbrigðis kórónuveirunnar í Suður-Afríku og greiningar afbrigðisins í löndum utan Afríku í kjölfar ferðalaga ræður sóttvarnalæknir íbúum Íslands, óháð bólusetningu gegn COVID-19, frá ferðalögum til tiltekinna landa Afríku að nauðsynjalausu. 27. nóvember 2021 11:07
Nýja kórónuveiruafbrigðið fær nafnið Ómíkron Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið nýjasta afbrigði kórónuveirunnar heiti gríska bókstafsins Ómíkron. Stofnunin gefur einungis afbrigðum sem hún hefur teljandi áhyggjur af nafn. 26. nóvember 2021 20:11
Umræða um bólusetningarskyldu eðlilegri ef örvunarskammturinn reynist vel Ef örvunarskammtur af bóluefni veitir verulega vörn gegn smiti eru komnar faglegar forsendur til að ræða bólusetningarskyldu að sögn sóttvarnalæknis. 22. nóvember 2021 13:38