Hyggjast stórefla hinsegin fræðslu í Garðabæ Árni Sæberg skrifar 5. júlí 2022 11:57 Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela fræðslu- og menningarsviði að ganga til viðræðna við Samtökin ’78 um samstarfssamning, með það fyrir augum að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu.
Í tillögunni, sem var samþykkt samhljóða, segir jafnframt að einnig verði stutt við það fræðslustarf um hinsegin málefni sem nú þegar er unnið á vinnustöðum og skólum Garðabæjar. Einnig verði horft til gildandi jafnréttisstefnu bæjarins og metið hvort og þá að hvaða leyti hún geti ýtt betur undir fjölbreytileika og styrkt stöðu hinsegin fólks og annarra hópa sem geta átt undir högg að sækja stöðu sinnar vegna. Í greinargerð með tillögunni segir að Garðabær standi með hinsegin fólki og baráttu þeirra fyrir mannréttindum. „Í Garðabæ tilheyrum við öll og það er okkur, kjörnum fulltrúum allra flokka í bæjarstjórn Garðabæjar, mikilvægt að sveitarfélagið sýni stuðning sinn í verki. Þess vegna leggjum við til að gengið verði til viðræðna við Samtökin ’78 - félag hinsegin fólks á Íslandi, sem halda úti öflugu og faglegu fræðslustarfi og ráðgjöf, um samstarfssamning. Það er samfélaginu öllu mikilvægt að mannréttindi og virðing fyrir fjölbreytileika mannlífsins sé í hávegum höfð,“ segir í greinargerð. Þá segir enn fremur að Garðabær sé barnvænt samfélag sem vinni að að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Aukin meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu sé mikilvægur þáttur í þeirri vinnu. Vilja stíga skrefinu lengra Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar segir um mikilvægt skref að ræða. „Það hefur verið vel haldið utan um fræðslu um hinsegin málefni í Garðabæ og starfsfólk okkar sýnt metnað í henni. En nú viljum við stíga skrefinu lengra og nýta samstarf við Samtökin´78 til að þróa fræðslu og umræðu um fjölbreytileika mannlífsins áfram. Við munum skýra nánar frá vinnu við samninginn og útfærslum á næstu vikum,“ er haft eftir Almari í fréttatilkynningu um málið. Bæjarfulltrúarnir Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Sara Dögg Svanhildardóttir, Brynja Dan Gunnarsdóttir og Guðfinnur Sigurvinsson eru sammála um hversu þarft það er að efla hinsegin fræðslu og meðvitund. „Garðabær er með þessari mikilvægu ákvörðun að taka stórt skref í mannréttindamálum og sýnir stuðning við hinsegin fólk í verki. Hinsegin fræðsla og aukin meðvitund um hinsegin málefni mun stuðla að opnara og frjálsara samfélagi þar sem öll fá að tilheyra,“ er haft eftir þeim í tilkynningu. Í tilefni af samþykktinni komu bæjarráðsfulltrúar saman að loknum fundi og máluðu regnbogafánann við inngang Garðatorg 7 á ný.
Hinsegin Garðabær Skóla - og menntamál Börn og uppeldi Mannréttindi Tengdar fréttir Stolt út um allt í Garðabæ! Í dag er gleðidagur fyrir okkur öll sem tilheyrum hinsegin samfélaginu í Garðabæ og um leið fyrir samfélagið allt. 5. júlí 2022 07:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna Erlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent Fleiri fréttir Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Sjá meira
Stolt út um allt í Garðabæ! Í dag er gleðidagur fyrir okkur öll sem tilheyrum hinsegin samfélaginu í Garðabæ og um leið fyrir samfélagið allt. 5. júlí 2022 07:01