Endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands Atli Ísleifsson skrifar 25. janúar 2023 13:14 Kolbrún Þ. Pálsdóttir tók við sem forseti sviðsins árið 2018. Aðsend/Kristinn Ingvarsson Kolbrún Þ. Pálsdóttir hefur verið endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára, eða til 1. júlí 2028.
Í tilkynningu frá Háskóla Íslands segir að Kolbrún hafi tekið við sem forseti sviðsins um mitt ár 2018 en hún hafi starfað við kennslu og rannsóknir innan háskólans í hartnær tvo áratugi. „Þá hefur hún margvíslega starfsreynslu af skóla- og frístundastarfi og gegndi m.a. viðamiklum stjórnunarstöðum hjá íþrótta- og tómstundasviði Reykjavíkurborgar þar sem hún tók þátt í stefnumótun og uppbyggingu á frístundaheimilum fyrir 6 til 9 ára börn. Kolbrún lauk BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 1996, meistaraprófi í uppeldis- og menntunarfræði árið 2001 og doktorsprófi á sviði menntunarfræða frá Uppeldis- og menntunarfræðideild árið 2012. Hún var ráðin lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið árið 2013 og fékk framgang í starf dósents árið 2017. Rannsóknir Kolbrúnar hafa einkum beinst að tengslum formlegs og óformlegs náms, hlutverki frístundaheimila og hvernig efla megi þverfræðilega samvinnu í skóla- og frístundastarfi í þágu barna. Kolbrún hefur tekið virkan þátt í mótun menntastefnu og umbótaverkefnum á öllum skólastigum auk ráðgjafar við menntamálayfirvöld,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Kolbrúnu að það sé mikill heiður að fá tækifæri til að leiða áfram Menntavísindasvið þar sem hún starfi með frábæru og metnaðarfullu samstarfsfólki. „Fram undan eru spennandi tímar og áframhaldandi uppbygging í samstarfi við fjölmarga hagaðila. Sviðið mun flytja í Sögu á aðalsvæði Háskólans á árinu 2024. Við ætlum okkur að skapa nýja Sögu og búa til kraftmikið menntasamfélag í því glæsilega húsi. Þar munu skapast mikil tækifæri fyrir íslenskt samfélag en ekki síður fyrir starfsfólk og nemendur sviðsins sem verða staðsett í miðju háskólasvæðinu og geta tengst betur öðrum starfseiningum skólans. Ég er handviss um að það muni efla menntarannsóknir enn frekar, fjölga nemendum á sviði menntunar og styðja við samfélagslega nýsköpun í menntakerfinu,“ segir Kolbrún. Menntavísindasvið Háskóla Íslands er eitt af fimm fræðasviðum Háskóla Íslands. Það skiptist í fjórar deildir: Deild faggreinakennslu, Deild menntunar og margbreytileika, Deild kennslu- og menntunarfræði og Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda. Á Menntavísindasviði starfa um 160 starfsmenn og ríflega 3.000 nemendur stunda nám við sviðið. Að auki skipuleggur sviðið umfangsmikla starfsþróun og fræðslu fyrir kennara og annað fagfólk í skóla- og frístundastarfi.
Háskólar Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Sjá meira