Brown með sögulega frammistöðu þegar Boston vann stórveldaslaginn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. apríl 2021 09:29 Leikmenn Los Angeles Lakers réðu ekkert við Jaylen Brown. ap/Ringo H.W. Chiu Boston Celtics sigraði erkifjendur sína í Los Angeles Lakers, 113-121, í stórleik næturinnar í NBA-deildinni í körfubolta. Jaylen Brown var í miklum ham í liði Boston og skoraði fjörutíu stig og hitti úr sautján af tuttugu skotum sínum. Hann tók einnig níu fráköst. Brown er fyrsti leikmaðurinn í sögu Boston sem skorar fjörutíu stig í leik og er með 85 prósent skotnýtingu. JAYLEN BROWN COULDN'T MISS @FCHWPO leads the @celtics to 5 straight wins as he becomes the first player in franchise history to score 40+ points on 85.0 FG% or better! pic.twitter.com/7UcBnZr3tW— NBA (@NBA) April 16, 2021 Boston náði mest 27 stiga forskoti en var næstum því búið að kasta henni frá sér undir lokin. Liðið hélt hins vegar út og vann fimmta leikinn í röð. LeBron James og Anthony Davis eru enn fjarri góðu gamni hjá Lakers vegna meiðsla. Talen Horton-Tucker var stigahæstur í liði Lakers með nítján stig en enginn í byrjunarliðinu skoraði meira en átján stig. Milwaukee Bicks lagði Atlanta Hawks að velli, 109-120. Giannis Antetokounmpo sneri aftur í lið Milwaukee eftir sex leikja fjarveru vegna meiðsla og skoraði fimmtán stig. Jrue Holiday var stigahæstur í liði Milwaukee með 23 stig. 23 points & 7 dimes for @Jrue_Holiday11 in the @Bucks W! pic.twitter.com/n4rZ2f0Rdw— NBA (@NBA) April 16, 2021 Stephen Curry heldur áfram að spila eins og engill fyrir Golden State Warriors og skoraði 33 stig þegar liðið vann Cleveland Cavaliers, 101-119, á útivelli. Þetta var fjórði sigur Golden State í röð. Curry hefur skorað að minnsta kosti þrjátíu stig í níu leikjum í röð. Hann setti met með því að hitta úr 29 þriggja stiga skotum í síðustu þremur leikjum en var frekar kaldur fyrir utan í nótt. Átta fyrstu skot Currys fyrir utan þriggja stiga línuna geiguðu og hann endaði með fjóra þrista í þrettán tilraunum. 33 points for @StephenCurry30.9th straight 30-point game.4th straight @warriors win. pic.twitter.com/6r0OwfNBxu— NBA (@NBA) April 16, 2021 Þá vann Phoenix Suns Sacramento Kings á heimavelli, 122-114. Deandre Ayton skoraði 26 stig og tók ellefu fráköst í liði Phoenix sem er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Ayton hitti úr tíu af ellefu skotum sínum og nýtti öll sex vítaskot sín. 26 PTS 11 REB 10-11 FGM 6-6 FTM@DeandreAyton leads the @Suns to 4 straight wins! pic.twitter.com/daYkBHPd1C— NBA (@NBA) April 16, 2021 Úrslitin í nótt LA Lakers 113-121 Boston Atlanta 109-120 Milwaukee Cleveland 101-119 Golden State Phoenix 122-114 Sacramento NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. NBA Mest lesið Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Jaylen Brown var í miklum ham í liði Boston og skoraði fjörutíu stig og hitti úr sautján af tuttugu skotum sínum. Hann tók einnig níu fráköst. Brown er fyrsti leikmaðurinn í sögu Boston sem skorar fjörutíu stig í leik og er með 85 prósent skotnýtingu. JAYLEN BROWN COULDN'T MISS @FCHWPO leads the @celtics to 5 straight wins as he becomes the first player in franchise history to score 40+ points on 85.0 FG% or better! pic.twitter.com/7UcBnZr3tW— NBA (@NBA) April 16, 2021 Boston náði mest 27 stiga forskoti en var næstum því búið að kasta henni frá sér undir lokin. Liðið hélt hins vegar út og vann fimmta leikinn í röð. LeBron James og Anthony Davis eru enn fjarri góðu gamni hjá Lakers vegna meiðsla. Talen Horton-Tucker var stigahæstur í liði Lakers með nítján stig en enginn í byrjunarliðinu skoraði meira en átján stig. Milwaukee Bicks lagði Atlanta Hawks að velli, 109-120. Giannis Antetokounmpo sneri aftur í lið Milwaukee eftir sex leikja fjarveru vegna meiðsla og skoraði fimmtán stig. Jrue Holiday var stigahæstur í liði Milwaukee með 23 stig. 23 points & 7 dimes for @Jrue_Holiday11 in the @Bucks W! pic.twitter.com/n4rZ2f0Rdw— NBA (@NBA) April 16, 2021 Stephen Curry heldur áfram að spila eins og engill fyrir Golden State Warriors og skoraði 33 stig þegar liðið vann Cleveland Cavaliers, 101-119, á útivelli. Þetta var fjórði sigur Golden State í röð. Curry hefur skorað að minnsta kosti þrjátíu stig í níu leikjum í röð. Hann setti met með því að hitta úr 29 þriggja stiga skotum í síðustu þremur leikjum en var frekar kaldur fyrir utan í nótt. Átta fyrstu skot Currys fyrir utan þriggja stiga línuna geiguðu og hann endaði með fjóra þrista í þrettán tilraunum. 33 points for @StephenCurry30.9th straight 30-point game.4th straight @warriors win. pic.twitter.com/6r0OwfNBxu— NBA (@NBA) April 16, 2021 Þá vann Phoenix Suns Sacramento Kings á heimavelli, 122-114. Deandre Ayton skoraði 26 stig og tók ellefu fráköst í liði Phoenix sem er í 2. sæti Vesturdeildarinnar. Ayton hitti úr tíu af ellefu skotum sínum og nýtti öll sex vítaskot sín. 26 PTS 11 REB 10-11 FGM 6-6 FTM@DeandreAyton leads the @Suns to 4 straight wins! pic.twitter.com/daYkBHPd1C— NBA (@NBA) April 16, 2021 Úrslitin í nótt LA Lakers 113-121 Boston Atlanta 109-120 Milwaukee Cleveland 101-119 Golden State Phoenix 122-114 Sacramento NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
LA Lakers 113-121 Boston Atlanta 109-120 Milwaukee Cleveland 101-119 Golden State Phoenix 122-114 Sacramento
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA Mest lesið Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Handbolti Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Enski boltinn Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Enski boltinn Dagskráin í dag: Fyrsti grasleikur sumarsins, úrslitakeppni í Subway og svo mikið meira Sport Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Körfubolti Meistaraþynnka Leverkusen entist ekki og liðið enn taplaust Fótbolti Góður leikur Tryggva skilaði engu Körfubolti Sigrar hjá Íslendingaliðunum Handbolti Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Enski boltinn Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron og Davis köstuðu líflínu til Lakers Bucks líklega án beggja ofurstjarna sinna í leik fjögur Góður leikur Tryggva skilaði engu „Kviknaði á okkur og við náðum að slökkva í þeim“ Uppgjör og viðtöl: Keflavík - Stjarnan 93-65 | Ótrúlegur seinni hálfleikur og Keflavík leiðir „Höfum verið að bíða eftir þessu“ Úlfarnir einum sigri frá því að senda Sólirnar í sumarfrí Aþena sendi sterk skilaboð í fyrsta leik Þrjú Suðurnesjalið í undanúrslitum í fyrsta sinn í tuttugu ár Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Lakers einu tapi frá því að vera sópað út úr úrslitakeppninni Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra „Tel mjög vafasamt að klukkan hafi verið sett af stað á réttum tíma“ „Vakna í hádeginu á morgun og fer að hugsa um Valsarana“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu Friðrik Ingi sæmdur gullmerki Njarðvíkur Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Sjokkeruðu Celtics menn með þriggja stiga skotsýningu „Heldur betur búinn að vinna hjörtu Keflvíkinga“ Tekið á móti Tryggva eins og Hollywood stjörnu Hristir hausinn yfir „glórulausum“ og „smásálarlegum“ ummælum Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Sjá meira
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Þ. 98-97 | Þorvaldur Orri tryggði Njarðvík sigur með flautukörfu í framlengingu