Ætlar að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstólinn Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 29. nóvember 2021 11:47 Magnús Norðdahl lögmaður hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Vísir/Sigurjón Magnús D. Norðdahl, lögmaður og frambjóðandi Pírata í Alþingiskosningunum í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Magnús er ekki einn um að boða slíkt en Stjórnarskrárfélagið hefur einnig tilkynnt að það hyggist fara með málið fyrir dómstólinn. Magnús tilkynnir þetta í yfirlýsingu sem hann hefur sent á fjölmiðla og segir hann að Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands og einn eigenda lögmannsstofunnar Réttis, muni flytja málið fyrir hans hönd. Magnús lagði fram kæru vegna kosningamálsins í Norðvesturkjördæmi til Alþingis þann 1. október síðastliðinn og krafðist hann ógildinga kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Hann segir í yfirlýsingunni að allar málsástæður kærunnar hafi falið í sér ógildingarannmarka sem voru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið hafi verið til þeirrar fyrri eða síðari. Talningarnar tvær á kjörseðlunum í kjördæminu segir Magnús hluta af meingölluð ferli þar sem hver ágallinn á fætur öðrum hafi komið í ljós. Vilji kjósenda hafi engan veginn legið fyrir enda hafi niðurstöður kosninganna breyst á milli talninga sem leitt hafi til breyttrar samsetningar þingsins. „Hefðu vörslur kjörgagna verið með fullnægjandi hætti mætti sannreynda hvor talningin hafi verið rétt en sá ómöguleiki er bein afleiðing af broti kjörstjórnar að hafa ekki farið að lögum varðandi varðveislu kjörgagna. Þingmenn, frambjóðendur og kjósendur í landinu vita því ekki hvort núverandi samsetning þingsins er rétt. Slíkt þing getur aldrei talist lögmætt,“ segir í yfirlýsingu Magnúsar. Hann segir ógildingu kosninga blasa við sama hvort almennum eða sértækum mælikvarða sé beitt. Þeir 42 þingmenn sem hafi lagt blessun sína yfir kosningarnar í Norðvesturkjördæmi þurfi þá að íhuga stöðu sína og framtíð í stjórnmálum fari svo að málið vinnist fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. „Enginn ætti að taka lýðræðinu sem gefnum hlut, sérstaklega þegar kjörnum fulltrúum er falið að úrskurða um gildi kosninga þar sem þeir náðu sjálfir kjöri. Ég trúi því að réttlætið muni sigra í þessu þó síðar verði.“ Lesa má yfirlýsingu Magnúsar í heild sinni hér að neðan:
Magnús er ekki einn um að boða slíkt en Stjórnarskrárfélagið hefur einnig tilkynnt að það hyggist fara með málið fyrir dómstólinn. Magnús tilkynnir þetta í yfirlýsingu sem hann hefur sent á fjölmiðla og segir hann að Sigurður Örn Hilmarsson, formaður Lögmannafélags Íslands og einn eigenda lögmannsstofunnar Réttis, muni flytja málið fyrir hans hönd. Magnús lagði fram kæru vegna kosningamálsins í Norðvesturkjördæmi til Alþingis þann 1. október síðastliðinn og krafðist hann ógildinga kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Hann segir í yfirlýsingunni að allar málsástæður kærunnar hafi falið í sér ógildingarannmarka sem voru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið hafi verið til þeirrar fyrri eða síðari. Talningarnar tvær á kjörseðlunum í kjördæminu segir Magnús hluta af meingölluð ferli þar sem hver ágallinn á fætur öðrum hafi komið í ljós. Vilji kjósenda hafi engan veginn legið fyrir enda hafi niðurstöður kosninganna breyst á milli talninga sem leitt hafi til breyttrar samsetningar þingsins. „Hefðu vörslur kjörgagna verið með fullnægjandi hætti mætti sannreynda hvor talningin hafi verið rétt en sá ómöguleiki er bein afleiðing af broti kjörstjórnar að hafa ekki farið að lögum varðandi varðveislu kjörgagna. Þingmenn, frambjóðendur og kjósendur í landinu vita því ekki hvort núverandi samsetning þingsins er rétt. Slíkt þing getur aldrei talist lögmætt,“ segir í yfirlýsingu Magnúsar. Hann segir ógildingu kosninga blasa við sama hvort almennum eða sértækum mælikvarða sé beitt. Þeir 42 þingmenn sem hafi lagt blessun sína yfir kosningarnar í Norðvesturkjördæmi þurfi þá að íhuga stöðu sína og framtíð í stjórnmálum fari svo að málið vinnist fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu. „Enginn ætti að taka lýðræðinu sem gefnum hlut, sérstaklega þegar kjörnum fulltrúum er falið að úrskurða um gildi kosninga þar sem þeir náðu sjálfir kjöri. Ég trúi því að réttlætið muni sigra í þessu þó síðar verði.“ Lesa má yfirlýsingu Magnúsar í heild sinni hér að neðan: Eftir töluverða umhugsun hef ég ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu. Mun ég fela Sigurði Erni Hilmarssyni formanni Lögmannafélags Íslands og eiganda á lögmannsstofunni Rétti að gæta hagsmuna minna. Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru því undir í þessu mikilvæga máli. Ég lagði fram kæru þann til Alþingis þann 1. október síðastliðinn og krafðist ógildingar kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Allar málsástæður kærunnar, hver um sig og eins allar saman, fólu í sér ógildingarannmarka sem voru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið var til þeirrar fyrri eða síðari, lögbrota og starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu. Kjarni málsins er sá að fyrir lágu tvær talningar í meingölluðu ferli þar sem hver ágallinn á fætur öðrum hefur komið í ljós. Vilji kjósenda lá engan veginn fyrir enda breyttust niðurstöður á milli talninga sem leiddu til breyttrar samsetningar þingsins. Hefðu vörslur kjörgagna verið með fullnægjandi mætti sannreyna hvor talningin hafi verið rétt en sá ómöguleiki er bein afleiðing af broti kjörstjórnar að hafa ekki farið að lögum varðandi varðveislu kjörgagna. Þingmenn, frambjóðendur og kjósendur í landinu vita því ekki hvort núverandi samsetning þingsins er rétt. Slíkt þing getur aldrei talist lögmætt. Ógilding kosninganna blasir við sama hvort beitt er almennum eða sértækum mælikvarða. Þeir 42 þingmenn, sem lögðu blessun sína yfir kosningarnar í Norðvesturkjördæmi, þurfa að íhuga stöðu sína og framtíð í stjórnmálum fari svo að mál þetta vinnist fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Enginn ætti að taka lýðræðinu sem gefnum hlut, sérstaklega þegar kjörnum fulltrúum er falið að úrskurða um gildi kosninga þar sem þeir sjálfir náðu kjöri. Ég trúi því að réttlætið muni sigra í þessu máli þó síðar verði.
Eftir töluverða umhugsun hef ég ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu. Mun ég fela Sigurði Erni Hilmarssyni formanni Lögmannafélags Íslands og eiganda á lögmannsstofunni Rétti að gæta hagsmuna minna. Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru því undir í þessu mikilvæga máli. Ég lagði fram kæru þann til Alþingis þann 1. október síðastliðinn og krafðist ógildingar kosninganna í Norðvesturkjördæmi. Allar málsástæður kærunnar, hver um sig og eins allar saman, fólu í sér ógildingarannmarka sem voru til þess fallnir að draga úr trúverðugleika talningarinnar, sama hvort litið var til þeirrar fyrri eða síðari, lögbrota og starfa yfirkjörstjórnar í heild og þar með trúverðugleika kosninganna sem fram fóru í kjördæminu. Kjarni málsins er sá að fyrir lágu tvær talningar í meingölluðu ferli þar sem hver ágallinn á fætur öðrum hefur komið í ljós. Vilji kjósenda lá engan veginn fyrir enda breyttust niðurstöður á milli talninga sem leiddu til breyttrar samsetningar þingsins. Hefðu vörslur kjörgagna verið með fullnægjandi mætti sannreyna hvor talningin hafi verið rétt en sá ómöguleiki er bein afleiðing af broti kjörstjórnar að hafa ekki farið að lögum varðandi varðveislu kjörgagna. Þingmenn, frambjóðendur og kjósendur í landinu vita því ekki hvort núverandi samsetning þingsins er rétt. Slíkt þing getur aldrei talist lögmætt. Ógilding kosninganna blasir við sama hvort beitt er almennum eða sértækum mælikvarða. Þeir 42 þingmenn, sem lögðu blessun sína yfir kosningarnar í Norðvesturkjördæmi, þurfa að íhuga stöðu sína og framtíð í stjórnmálum fari svo að mál þetta vinnist fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Enginn ætti að taka lýðræðinu sem gefnum hlut, sérstaklega þegar kjörnum fulltrúum er falið að úrskurða um gildi kosninga þar sem þeir sjálfir náðu kjöri. Ég trúi því að réttlætið muni sigra í þessu máli þó síðar verði.
Endurtalning í Norðvesturkjördæmi Alþingiskosningar 2021 Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Mannréttindadómstóll Evrópu Píratar Tengdar fréttir Skora á Katrínu að segja af sér og boða mál fyrir Mannréttindadómstólnum Stjórnarskrárfélagið hefur skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra til að segja af sér vegna framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu. Formaður félagsins segir Alþingi hafa höggið varanlegt skarð í traust kjósenda gagnvart löggjafarvaldinu. 29. nóvember 2021 10:37 Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra. 26. nóvember 2021 23:28 Traustið á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu Frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir traust sitt á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu eftir niðurstöðu kjörbréfamálsins. Hann sjái engan annan kost í stöðunni en að fara með málið alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. 26. nóvember 2021 11:52 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Getur gosið hvenær sem er Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Erlent Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Innlent Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Erlent Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Getur gosið hvenær sem er Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Besti vinur úlfanna hlakkar til að tengjast áhorfendum í Hörpu Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Tilkynnti sig tvisvar til barnaverndar til að fá aðstoð fyrir einhverfa dóttur Bandarísk þota í vandræðum lenti í Keflavík Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Framkvæmdastjórinn sagður hafa greitt sjálfum sér án heimildar Yfirvofandi eldgos, örvæntingarfull móðir og Hamraborgarþjófarnir Eiga von á öðru eldgosi Maður með kókaín í niðursuðudósum fær mildari dóm Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Öllum dómurum skipt út í milljarðamáli fyrrverandi ráðherra Skoðar róttækar breytingar á vaxtabótakerfinu Baldur segir lygasögur ekki hafa nein áhrif á þá Felix Ráðnar aðstoðarmenn nýrrar ríkisstjórnar Átta forsetaefni klár með listana Þórhildur og Heiða María hlutu Hvatningarverðlaun Rannsóknasjóðs Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin Ófundin peningataska, aukin spenna í Mið-Austurlöndum og breyting á vaxtabótum Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni Guðmundur H. Garðarsson fallinn frá Sakaður um fjölda afbrota: Ungar stúlkur einar heima urðu skelkaðar þegar hann ruddist inn Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Kallað út vegna eldamennsku við Stuðlaháls Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Straumhvörf í veðrinu Náttúran helsta ástæðan fyrir ferðalögum til Íslands Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Sjá meira
Skora á Katrínu að segja af sér og boða mál fyrir Mannréttindadómstólnum Stjórnarskrárfélagið hefur skorað á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra til að segja af sér vegna framgöngu Alþingis gagnvart lýðræði í landinu. Formaður félagsins segir Alþingi hafa höggið varanlegt skarð í traust kjósenda gagnvart löggjafarvaldinu. 29. nóvember 2021 10:37
Varð fyrir sérstökum vonbrigðum með forsætisráðherra Þrír frambjóðendur sem kærðu framkvæmd alþingiskosninganna segja það mikil vonbrigði að alþingi hafi staðfest kjörbréf allra þingmanna í gær. Það sé þó ákveðinn léttir að málinu sé lokið í bili. Einn kærenda segist sérstaklega vonsvikinn með afstöðu forsætisráðherra. 26. nóvember 2021 23:28
Traustið á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu Frambjóðandi Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi segir traust sitt á Alþingi og lýðræðislegum ferlum í ræsinu eftir niðurstöðu kjörbréfamálsins. Hann sjái engan annan kost í stöðunni en að fara með málið alla leið til Mannréttindadómstóls Evrópu. 26. nóvember 2021 11:52