Eftirmaður Alfreðs áfram hjá Kiel

Filip Jicha, þjálfari Kiel.
Filip Jicha, þjálfari Kiel. Ljósmynd/@StZ_NEWS

Þýska stórliðið THW Kiel er greinilega ánægt með eftirmann Alfreðs Gíslasonar og hefur gert nýjan samning við Filip Jicha. 

Félagið tilkynnti þetta í gær og Jicha er nú samningsbundinn Kiel út keppnistímabilið 2022-2023. 

Jicha er Tékki og lék lengi með liðinu undir stjórn Alfreðs. Hann tók við af Alfreð sumarið 2019 þegar Alfreð lét af störfum að eigin ósk. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert