Segir hvimleitt að leikirnir klárist ekki á sama tíma en árangurinn frábæran Anton Ingi Leifsson skrifar 1. desember 2020 18:01 Jón Þór Hauksson. vísir/vilhelm Jón Þór Hauksson var í skýjunum með sigur Ísland á Ungverjalandi fyrr í kvöld og sagði sigurmarkið stórkostlegt. „
Ég er í skýjunum með sigurinn og sigrana tvo,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, eftir 1-0 sigurinn gegn Ungverjalandi í undankeppni EM í kvöld. Berglind Björg Þorvalsdóttir skoraði fyrsta og eina mark leiksins í síðari hálfleik en sigurinn fleytir Íslandi svo gott sem á EM. Ísland vann því báða leiki sína í þessari ferð og við það var stjórinn ánægður. „Við gátum ekki fengið neitt meira út úr ferðinni. Virkilega vel gert. Við höfum áður talað um það að „double header“ hafi ekki alltaf skilað okkur sex stigum en þeir gerðu það núna. Þetta er frábær árangur og nítján stig í þessum riðli er frábær árangur.“ Hann var næst spurður út í leik dagsins sem var ansi erfiður og voru Ungverjarnir ansi þéttir fyrir. „Þessi leikur var erfiður. Ungverjarnir voru virkilega þéttir og lágu þétt til baka og voru agaðir í sínum varnarleik. Okkur gekk illa að finna glufur á þeim varnarleik en það var stórkostlegt mark hjá Berglindi sem tryggði þessi frábæru þrjú stig og árangurinn. Við þurftum eitthvað sérstakt og það kom frá Berglindi.“ „Stíga út varnarmanninn og afgreiðslan góð. Mark sem tryggði okkur þennan frábæra árangur. Við hefðum viljað gera betur í sóknarleiknum og við fengum stöðurnar en þetta eina mark dugði okkur til þess að tryggja stigin þrjú.“ Berglind hefur heldur betur gripið tækifærin að undanförnu en hún hefur skorað í báðum leikjum liðsins í þessari ferð eftir að hafa setið mest á bekknum það sem af er undankeppninni. „Berglind hefur verið algjörlega frábær fyrir okkur. Elín byrjaði þessa undankeppni og skoraði í öllum leikjum. Samkeppnin er mikil og Berglind hefur verið virkilega til fyrirmyndar; hennar hugarfar og er tilbúin að hjálpa liðinu. Kemur inn í byrjunarliðin og skorað í báðum leikjunum. Við höfum alltaf vitað af henni og við höfum rætt það saman að hún hefur traust. Hún hefur traust frá okkur og þegar tækifærið kemur þá er hún frábær leikmaður. Hún hefur nýtt tækifærin frábærlega.“ Því miður fyrir íslenska liðið kláruðust allir leikirnir í undankeppninni ekki í kvöld og því þarf liðið að bíða mögulega fram í febrúar til þess að vita hvort að þær séu komnar á EM beint eða þurfi í umspil. „Það er hvimleitt að þessir leikir klárist ekki á sama tíma. Það er ekki í okkar höndum og það var leiðinlegt. Allt sem var í okkar valdi stóð og við getum ekki gert neitt meira. Nú er að bíða og sjá hvernig þetta endar. Við erum búin að gera okkar og ef að við förum í umspil þá gerum við það. Við erum með frábært lið,“ sagði Jón Þór.
EM 2021 í Englandi Tengdar fréttir Sjáðu geggjað mark hjá Berglindi sem braut loksins ísinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir ætlar að verða íslenska landsliðinu mikilvæg á lokasprettinum í undankeppni EM í Englandi. 1. desember 2020 16:05 Umfjöllun: Ungverjaland - Ísland 0-1 | Berglind skaut stelpunum svo gott sem á EM Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er svo gott sem komið á EM í Englandi 2022 eftir 0-1 sigur á Ungverjalandi í síðasta leik sínum í undankeppninni í dag. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu. 1. desember 2020 16:40 Mest lesið Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Viktor Gísli sagður á leið til Barcelona Handbolti Djokovic segir þjálfaranum upp Sport Dagskráin í dag: Grannaslagur og körfuboltaveisla Sport „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fótbolti „Ég er tilbúinn“ Fótbolti „Hörkuleikur sem sveiflast fram og til baka en rosalegur karakter að ná að klára þetta“ Handbolti „Þið sem fjallið um þetta verðið að skilja það að þið eruð ekki á æfingum“ Handbolti „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ Körfubolti Fleiri fréttir Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins „Ég er tilbúinn“ „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ „Flottur sigur og heilt yfir fín frammistaða“ Fimmtu undanúrslitin á sjö árum Umfjöllun: Breiðablik - ÍA 4-1 | Blikar unnu Lengjubikarinn með sigri gegn Skaganum Lyon nokkuð örugglega í undanúrslit Grindvíkingar leggja niður yngri flokka Rasmus til Eyja Messi: Ég hætti þegar ég get ekki lengur hjálpað mínum liðsfélögum Skagamenn geta unnið fyrsta titil sinn í meira en tvo áratugi Meiðslavandræði á Man. City fyrir stórleikinn á móti Arsenal Sigurinn á Íslandi var „gjöf til úkraínsku þjóðarinnar“ Man. United sagt vilja fá stjóra Úlfanna í þjálfarateymið sitt Albert átti ekki bara eitt heldur tvö af flottustu mörkum umspilsins Haaland baðst afsökunar eftir leik Myndasyrpa frá tapinu grátlega gegn Úkraínu Þór/KA sækir markvörð til Bandaríkjanna Pólland síðasta þjóðin inn á EM „Mér finnst ég hafa nóg fram að bjóða í þessu liði“ Åge Hareide: Framtíðin er björt „Vorum svo ógeðslega nálægt þessu“ „Hann var alltaf mættur“ Einkunnir Íslands: Albert og Hákon bestir í grátlegu tapi „Vorum grátlega nálægt þessu“ Umfjöllun: Úkraína - Ísland 2-1 | EM-draumurinn úti „Eins og gæi sem var með vesen á Astró svona 2002“ Sjáðu mörkin: Úkraína kláraði dæmið í lokin Georgía á EM eftir sigur í vítaspyrnukeppni Byrjunarlið Íslands: Þrjár breytingar frá sigrinum á Ísrael Sjá meira
Sjáðu geggjað mark hjá Berglindi sem braut loksins ísinn Berglind Björg Þorvaldsdóttir ætlar að verða íslenska landsliðinu mikilvæg á lokasprettinum í undankeppni EM í Englandi. 1. desember 2020 16:05
Umfjöllun: Ungverjaland - Ísland 0-1 | Berglind skaut stelpunum svo gott sem á EM Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er svo gott sem komið á EM í Englandi 2022 eftir 0-1 sigur á Ungverjalandi í síðasta leik sínum í undankeppninni í dag. Berglind Björg Þorvaldsdóttir skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu. 1. desember 2020 16:40