Fyrrverandi bæjarstjóri dæmdur fyrir meiriháttar skattalagabrot Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2021 13:08 Jónmundur Guðmarsson er meðal annars fyrrverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. Jónmundur Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóri á Seltjarnarnesi og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hefur verið dæmdur í sjö mánaða fangelsi og greiðslu 66,5 milljóna króna sektar vegna meiriháttar brota á skatta- og bókhaldslögum. Fresta skal fullnustu fangelsisrefsingarinnar haldi Jónmundur almennt skilorð í tvö ár.
Dómurinn yfir Jónmundi féll í Héraðsdómi Reykjaness í lok nóvember, en hann var birtur í dag. Brotin sem Jónmundur var dæmdur fyrir sneru að samlagsfélagsins Polygon, en Jónmundur var ábyrgðaraðili og 99 prósent eigandi félagsins. Í ákæru segir að Jónmundur hafi staðið efnislega skil röngum skattframtölum félagsins gjaldárin 2015 til og með 2017 með því að færa til gjalda tilhæfulausan kostnað. Á hann að hafa oftalið í skattskilum rekstrargjöld félagsins um samtals tæpum 95 milljónum króna. Jónmundur krafðist sýknu í málinu en játaði fyrir dómi að hafa offramtalið rekstrargjöld, en að sú heildarfjárhæð sem fram kæmi í ákærðu væri of há. Var það niðurstaða dómsins að við ákvörðun refsingar skyldi leggja til grundvallar að offramtalin rekstrargjöld Polygon á tímabilinu hafi numið 61,5 milljónum króna. Jónmundur var bæjarstjóri á Seltjarnarnesi á árunum 2002 til 2009 og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins árin 2009 til 2014. Hann var ráðinn í starf framkvæmdastjóra hjá GAMMA árið 2016 og varð forstöðumaður sölu og viðskiptatengsla hjá eignastýringu Kviku þegar Kvika tók yfir GAMMA árið 2019.
Dómsmál Efnahagsbrot Seltjarnarnes Sjálfstæðisflokkurinn Tengdar fréttir Fyrrverandi bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins ákærður fyrir skattalagabrot Embætti héraðssaksóknara hefur ákært Jónmund Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóra Seltjarnarness og fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. 29. mars 2021 16:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Gular viðvaranir víðs vegar um landið Veður Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Erlent Fleiri fréttir Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Sjá meira
Fyrrverandi bæjarstjóri og framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins ákærður fyrir skattalagabrot Embætti héraðssaksóknara hefur ákært Jónmund Guðmarsson, fyrrverandi bæjarstjóra Seltjarnarness og fyrrverandi framkvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins fyrir meiriháttar brot gegn skatta- og bókhaldslögum. 29. mars 2021 16:59