Innlent

Fjöldi sjálfs­víga fyrri hluta árs svipaður og síðustu ár

Atli Ísleifsson skrifar
Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis.
Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis. Vísir/Vilhelm

Fjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði ársins 2021 var sautján, eða 4,6 á hverja 100.000 íbúa. Er fjöldinn svipaður og verið hefur síðustu ár, en meðalfjöldi sjálfsvíga fyrstu sex mánuði áranna 2016 til 2020 var átján, eða 5,1 á hverja 100.000 íbúa.

Frá þessu segir á vef Embættis landlæknis þar sem bráðabirgðatölur um sjálfsvíg hafa verið birtar. Þar segir ennfremur að ekki sé heldur mikil breyting sé litið til tíu ára meðaltals áranna 2011 til 2020.

Opinber tölfræði um sjálfsvíg byggir á dánarmeinaskrá landlæknis. Fjöldi sjálfsvíga tekur til andláta þar sem undirliggjandi dánarorsök á dánarvottorði er skráð vísvitandi sjálfsskaði.

„Skráningu dánarmeina er ekki hægt að ljúka fyrr en öll gögn og krufningaskýrslur frá réttarmeinafræðideild Landspítala hafa borist embætti landlæknis. Ferlið getur því verið nokkuð tímafrekt. Nú er hins vegar svo komið að gögn hafa borist fyrir fyrri hluta ársins 2021 og hafa bráðabirgðatölur um sjálfsvíg því verið gefnar út.“

Ennfremur segir að vegna fámennis þjóðarinnar þá geti litlar breytingar á fjölda valdið nokkrum sveiflum í dánartíðni milli ára. Talsvert miklar sveiflur þurfi að verða til þess að hægt sé að staðhæfa að um marktæka breytingu sé að ræða. Því sé mikilvægt að túlka ekki sex mánaða bráðabirgðatölur sem vísbendingu um aukningu eða samdrátt á tíðni sjálfsvíga.

Fólk með sjálfsvígshugsanir er minnt á þjónustu Pieta-samtakanna. Síminn hjá Pieta-samtökunum er opinn allan sólarhringinn, númerið er 552-2218.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×