Tvö hundruð mega koma saman og eins metra fjarlægðarregla Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. júlí 2021 19:05 Helstu breytingar. Vísir/Ragnar Nýjar samkomutakmarkanir taka gildi á miðnætti annað kvöld. 200 manns mega koma saman og eins metra fjarlægðarmörk verða í gildi. Hertar aðgerðir gilda til 13. ágúst.
Þetta tilkynnti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra í beinni útsendingu í Kvöldfréttum Stöðvar 2 nú fyrir stundu. Opnunartími skemmtistaða og veitingastaða færist til klukkan 23 á kvöldin og síðasti maður þarf að fara út á miðnætti. Þá mun líkamsræktarstöðum og sundlaugum heimilt að taka á móti 75 prósent af leyfilegum fjölda í venjulegi árferði. Svandís fór yfir helstu atriðin sem taka gildi á miðnætti annað kvöld. Horfa má á viðtal við hana hér fyrir neðan. Helstu takmarkanir eru eftirfarandi: Almennar fjöldatakmarkanir verða 200 manns. Börn fædd 2016 og síðar eru undanþegin. Nándarregla verður almennt 1 metri. Börn fædd 2016 og síðar verði undanþegin. Grímuskylda verður tekin upp innanhúss og þar sem ekki er unnt að viðhafa 1 metra reglu. Börn fædd 2006 og síðar eru undanþegin. Hámarksfjöldi viðskiptavina í verslunum verði 200. Heilsu- og líkamsræktarstöðvum sem og sund- og baðstöðum verður heimilt að hafa opið fyrir 75% af hámarksfjölda leyfilegra gesta. Sameiginlegan búnað skal sótthreinsa milli notenda. Söfnum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Íþróttaæfingar og -keppnir barna og fullorðinna heimilar með og án snertinga með 100 manna hámarksfjölda. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými sem skulu skráðir í sæti. Veitingasala óheimil á keppnisstöðum. Æfingar og sýningar sviðslista og sambærilegrar starfsemi heimilar með allt að 100 manns á sviði. Hámarksfjöldi áhorfenda 200 manns í rými, svo sem í bíóhúsum. Heimilt að hafa hlé en enga veitingasölu í hléum. Skrá skal gesti í sæti. Hámarksfjöldi gesta við athafnir trú- og lífsskoðunarfélaga verður 200. Opnunartími veitingastaða, skemmtistaða o.þ.h. verður til kl. 23:00 (tæma þarf staði fyrir miðnætti) og hámarksfjöldi gesta 100 manns í rými. Vínveitingar bornar fram til sitjandi gesta. Skrá skal gesti. Tjaldstæði og hjólhýsasvæði fari eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis og Ferðamálastofu. Í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis er þegar hafinn undirbúningur að því að bjóða þeim sem bólusettir hafa verið með bóluefni Janssen seinni bólusetningu í ágúst. Einnig verður einstaklingum með undirliggjandi ónæmisvandamál og þeim sem talið er að tveir skammtar veiti ekki nægilega góða vörn gegn COVID-19 boðinn þriðji skammtur bóluefnis. Samkomutakmarkanir taka gildi 25. júlí og gilda til og með 13. ágúst. Ríkisstjórnin tók þessa ákvörðun á maraþonfundi á Egilsstöðum í dag en Svandís sagði að ákveðið hafi verið að fara í meginatriðum eftir tillögum sóttvarnarlæknis, en minnisblað hans má sjá hér að neðan. Reglugerð heilbrigðisráðherra Minnisblað sóttvarnarlæknis
Samkomubann á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Sundlaugar Líkamsræktarstöðvar Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Næturlíf Veitingastaðir Tengdar fréttir Katrín: Algjör samstaða um þessa niðurstöðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að með nýjum hertum aðgerðum innnanland sé verið að reyna að tempra fjölgun smita hér á landi. Algjör samstaða hafi verið innan ríkisstjórnarinnar um þær aðgerðir sem farið verður í. 23. júlí 2021 20:09 Bjarni: Þetta er varúðarráðstöfun Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands. 23. júlí 2021 20:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Sjá meira
Katrín: Algjör samstaða um þessa niðurstöðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að með nýjum hertum aðgerðum innnanland sé verið að reyna að tempra fjölgun smita hér á landi. Algjör samstaða hafi verið innan ríkisstjórnarinnar um þær aðgerðir sem farið verður í. 23. júlí 2021 20:09
Bjarni: Þetta er varúðarráðstöfun Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þær sóttvanraraðgerðir sem taka gildi á miðnætti annað kvöld séu varúðarráðstafanir. Hann blæs á það að einhver óánægja sé innan raða Sjálfstæðismanna með hertar aðgerðir innanlands. 23. júlí 2021 20:02