Erlent

Varaði við köldu stríði Kína og Bandaríkjanna

Kjartan Kjartansson skrifar
Allsherjarþing SÞ fer fram með óhefðbundnu sniði vegna faraldurins í ár. Aðeins einn erindreki frá hverri þjóð fékk að vera í salnum í New York en leiðtogar ávörpuðu þingið í gegnum fjarfundarbúnað.
Allsherjarþing SÞ fer fram með óhefðbundnu sniði vegna faraldurins í ár. Aðeins einn erindreki frá hverri þjóð fékk að vera í salnum í New York en leiðtogar ávörpuðu þingið í gegnum fjarfundarbúnað. AP/UNTV

Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, varaði við hættunni á að nýtt kalt stríð brytist út á milli Bandaríkjanna og Kína í ávarpi sínu á fyrsta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna sem fer fram í fjarfundi. Trump Bandaríkjaforseti nýtti sitt ávarp til þess að kenna Kína um kórónuveiruheimsfaraldurinn.

Spenna á milli Bandaríkjastjórnar og stjórnvalda í Beijing hefur farið vaxandi undanfarin ár. Eftir að Donald Trump tók við sem forseti Bandaríkjanna hafa stórveldin háð viðskiptastríð og kórónuveirufaraldurinn, sem átti upptök sín í Kína, hefur gert lítið til þess að bæta samskiptin.

Guterres dróg upp dökka mynd af stöðu heimsmála í ávarpi sínu á allsherjarþinginu sem fer fram í fjarfundi vegna faraldursins í dag. Sagði hann veiruna hafa knésett heimsbyggðina en það væri engu að síður aðeins undirbúningur fyrir þær áskoranir sem hún ætti enn eftir að takast á við.

Kallaði framkvæmdastjórinn eftir því að ríki heims sýndu samstöðu í að berjast gegn faraldrinum og gagnrýndi lýðskrumara og þjóðernissinna fyrir að hafa mistekist að ná tökum á faraldrinum og jafnvel gert illt verra.

„Á sama tíma verðum við að gera allt til þess að forðast nýtt kalt stríð,“ sagði Guterres og vísaði til versnandi samskipti Kína og Bandaríkjanna. „ Við erum á leiðina í mjög hættulega átt.“

Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði þingið stuttlega í myndbandi sem var tekið upp fyrirfram.AP/UNTV

Kína bar af sér ásakanir Trump

Ræða Trump gerði þó lítið til þess að lægja öldurnar í samskiptunum við Kína. Talaði forsetinn, eins og hann hefur oft gert áður, um „Kínaveiruna“ og hvatti Sameinuðu þjóðirnar til þess að draga stjórnvöld í Beijing til ábyrgðar fyrir að hafa ekki stöðvað faraldurinn.

Kínversk stjórnvöld hafa verið sökuð um að reyna að hylma yfir faraldurinn þegar hann braust fyrst út í Wuhan. Ríkisstjórn Trump hunsaði hins vegar viðvaranir um hættuna af veirunni og var nær algerlega óundirbúin fyrir að hún dreifði sér um Bandaríkin. Nú hafa fleiri en 200.000 manns látið lífið í Bandaríkjunum, fleiri en í nokkru öðru ríki. Ein miljón manna hefur látist í faraldrinum á heimsvísu.

Sendiherra Kína hafnaði ásökunum Trump og sagði þær stoðlausar.

„Á þessari stundu þarfnast heimurinn meiri samstöðu og samvinnu, ekki átaka. Við verðum að auka gagnkvæmt traust og trú en ekki dreifa pólitískri veiru. Kína hafnar staðfastlega stoðlausum ásökunum á hendur Kína,“ sagði Zhang Jun, sendiherra Kína við Sameinuðu þjóðirnar.

Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, notaði sína ræðu til þess að gagnrýna fjölmiðla heima fyrir sem hann sakaði um að „ala á skelfingu“ í faraldrinum. Sjálfur hefur hann gert lítið úr hættunni af veirunni, sem hann smitaðist sjálfur af, og hreykti hann sér af því að hafa einblínt á efnahagslegar aðgerðir í ræðunni hjá SÞ. Fjöldi látinna í Brasilíu er sá næsthæsti í heiminum. Þar hafa um 136.000 manns látið lífið í faraldrinum samkvæmt tölum Johns Hopkins-háskóla.


Tengdar fréttir

Kínverjum skipað að loka ræðisskrifstofu í Houston

Bandaríkjastjórn hefur skipað kínverskum stjórnvöldum að loka ræðisskrifstofu sinni í Houston í Texas. Kínverjar segja ákvörðunina „pólitíska ögrun“ en bandarísk stjórnvöld segja hana tekna til þess að verja bandarísk hugverk.

Kínverjar gagnrýna Huawei-bann Breta harðlega

Ákvörðun breskra stjórnvalda um að banna 5G-tæknibúnað frá kínverska tæknifyrirtækinu Huawei er rakalaus að mati kínversku ríkisstjórnarinnar. Hún hótar að grípa til aðgerða til þess að tryggja „lögmæta hagsmuni“ kínverskra fyrirtækja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×