Fótbolti

Gunnhildur og eiginkonan yfirgefa Orlando Pride

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur leikið sinn seinasta leik fyrir Orlando Pride.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur leikið sinn seinasta leik fyrir Orlando Pride. Jeremy Reper/ISI Photos/Getty Images

Knattspyrnukonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir hefur yfirgefið herbúðir Orlando Pride þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár.

Frá þessu er greint á samfélagsmiðlum félagsins, en ásamt Gunnhildi hefur eiginkona hennar, kanadíski markvörðurinn Erin McLeod, einnig yfirgefið félagið.

Gunnhildur, sem er 34 ára gömul, gekk til liðs við Orlandi Pride í janúar árið 2021 og hefur því verið hjá félaginu í slétt tvö ár. 

Gunnhildur og Erin gengu í hjónaband fyrr í mánuðinum og ætla nú að snúa aftur til Íslands. Gunnhildur hóf feril sinn hjá Stjörnunni þar sem hún lék 119 deildarleiki áður en hún hélt út í atvinnumennsku árið 2012. McLeod var einnig á láni hjá Stjörnuliðinu árið 2020.

Í bréfi sem Gunnhildur sendir stuðningsmönnum Orlandi Pride á heimasíðu félagsins þakkar hún fyrir frábæran tíma hjá félaginu.

„Orlando hefur verið heimili mitt í tvö ár og það er ekki auðvelt að kveðja. Ég er svo þakklát fyrir tíma minn hér og einnig fyrir allt fólkið sem ég hitti,“ segir Gunnhildur.

„Ég vil þakka öllum leikmönnunum, það voru forréttindi að fá að spila með ykkur. Ég vil þakka starfsfólkinu, þið tókuð alltaf vel á móti okkur og voruð tilbúin að hjálpa eins og mögulegt var. Síðast en ekki síst vil ég þakka stuðningsmönnunum fyrir sinn endalausa stuðning. Sérstaklega vil ég þakka Svörtu Svönunum sem mættu alltaf og studdu okkur í gegnum súrt og sætt.“

„Ég óska Pride góðs gengis á þessu tímabili og mun styðja við bakið á ykkur úr fjarlægð.“

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og eiginkona hennar, Erin McLeod.Orlando Pride



Fleiri fréttir

Sjá meira


×