Bjarki og félagar lentir undir

Bjarki Már Elísson og félagar eru lentir undir í úrslitaeinvíginu.
Bjarki Már Elísson og félagar eru lentir undir í úrslitaeinvíginu. mbl.is/Óttar Geirsson

Landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson og félagar í Veszprém eru lentir undir í úrslitaeinvígi sínu gegn Pick Szeged í ungverska handboltanum í dag. 

Bjarki skoraði þrjú mörk í leiknum sem lauk með 31:25-sigri Szeged. Szeged hafnaði í fyrsta sæti deildarinnar en Veszprém í öðru sæti. 

Annar leikur liðanna fer fram á mánudaginn kemur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert