Rocket Lab ætlar í aukna samkeppni við SpaceX með nýrri eldflaug Samúel Karl Ólason skrifar 3. desember 2021 13:41 Rocket Lab Fyrirtækið Rocket Lab hefur opinberað næstu kynslóð eldflauga þess sem eiga að vera endurnýtanlegar. Eldflaugarnar heita Neutron og er markmiðið að nota þær í samkeppni við SpaceX.
Fosvarsmenn Rocket Lab opinberuðu þróunarvinnuna að Neutron fyrr á árinu þegar Peter Beck, forstjóri Rocket Lab, neyddist til að borða hatt sinn. Fyrir þá kynningu í mars sagði Beck að Rocket Lab myndi aldrei framleiða endurnýtanlegar eldflaugar. Eftir að eldflauginni er skotið á loft, á nef hennar að opnast og farmurinn sendur af stað. Þá á nefið að lokast aftur fyrir lendingu og þannig á að lenda allri eldflauginni aftur í heilu lagi. Því næst á að vera hægt að fylla aftur á hana eldsneyti, koma fyrir nýjum farmi og vonast sérfræðingar Rocket Lab til að hægt verði að skjóta Neutron aftur út í geim á einum sólarhring. Beck lýsti eldflauginni sem eldflaug fyrir árið 2050. Neutron á að geta flutt allt að fimmtán tonn í lága sporbraut. Falcon 9 eldflaug SpaceX getur flutt tæp 23 tonn í sömu hæð. Samkvæmt frétt CNBC vonast Beck til þess að geta skotið fyrstu Neutron-eldflauginni út í heim árið 2024 og byrjað að flytja muni út í geim fyrir viðskiptavini ári seinna. Hér að neðan má sjá kynningu Rocket Lab frá því í gær. Þar fór Beck meðal annars yfir hönnunarferli Neutron og hvernig það fór fram og fór hann einnig yfir það að eldflaugarnar eiga að vera framleiddar úr nýju efni sem sé sterkara en stál og mun léttara. SpaceX hefur verið að nota Falcon9 eldflaugar í nokkur ár núna og með mjög góðum árangri. Þær eldflaugar lenda aftur á jörðinni og eru endurnýtanlegar en þannig hefur SpaceX dregið verulega úr kostnaði við geimskot. Elon Musk og aðrir forsvarsmenn fyrirtækisins hafa þó sett mikla orku í þróun nýrra eldflauga og geimfara sem eiga að taka við af Fálkunum. Starship á að geta borið mun meiri farm og manneskjur hærra út í geim, til tunglsins og til annarra reikistjarna. Musk varaði nýverið við því að SpaceX ætti í vandræðum vegna hægagangs við framleiðslu hreyfla fyrir Starship og að gjaldþrot væri mögulegt.
Geimurinn Tækni Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Há laun og dýr bjór séu vandamál ÁTVR Viðskipti innlent „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Samstarf Fleiri fréttir Dagar Workplace eru taldir Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Rannsaka hvort Tesla hafi blekkt neytendur og fjárfesta Taka bóluefni AstraZeneca úr sölu vegna dvínandi eftirspurnar Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Stofnandi Binance dæmdur fyrir peningaþvætti Sagðir vilja frekar loka TikTok en selja Sækjast eftir fangelsisdómi yfir rafmyntakóngi Mikill samdráttur á hagnaði Tesla Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Sjá meira