Hæðin heldur lægðinni fjarri

mbl.is/Hari

Nú er 1.038 mb hæð milli Íslands og Færeyja sem stjórnar veðrinu hjá okkur. Víðáttumikil og djúp lægð er nærri Nýfundnalandi, en hún kemur ekki við sögu í veðrinu á Íslandi því hæðin heldur henni fjarri. Veður verður því með rólegra móti út vikuna að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Spáin í dag er annars svohljóðandi: Sunnangola eða -kaldi og dálítil væta norðvestan- og vestanlands, en bjartviðri um landið austanvert. Hiti víða 2 til 7 stig yfir daginn.

Suðaustanátt á morgun, áfram gola eða kaldi að styrk. Lítils háttar rigning af og til, en þurrt og bjart á Norður- og Austurlandi. Svipaður hiti áfram.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:
Sunnan 3-8 m/s, skýjað og sums staðar dálítil rigning, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 6 stig.

Á laugardag:
Austlæg eða breytileg átt 3-8, en 8-13 með norðurströndinni. Skýjað og dálítil væta á köflum, hiti 1 til 6 stig. Stöku él norðaustan til á landinu og vægt frost þar.

Á sunnudag:
Sunnan 3-8 og dálítil væta á Suður- og Vesturlandi, en þurrt annars staðar. Hiti 1 til 6 stig.

Á mánudag:
Breytileg átt 5-13 og rigning eða slydda með köflum í flestum landshlutum. Hiti 0 til 5 stig.

Á þriðjudag:
Ákveðin norðaustanátt með snjókomu á norðanverðu landinu, en hægari vindur og úrkomulítið sunnan til. Frystir um mestallt land.

Á miðvikudag:
Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu, en úrkomulaust að mestu sunnanlands. Frost víða 0 til 5 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert