Bílar sátu fastir í Baldri

Á myndinni má sjá þegar vörubílarnir sátu fastir í ferjunni.
Á myndinni má sjá þegar vörubílarnir sátu fastir í ferjunni. Ljósmynd/Hrönn Árnadóttir

Breiðafjarðarferjan Baldur sat föst í tvær klukkustundir í höfninni í Stykkishólmi fyrr í dag. Vegna þess að háfjara var um það leyti sem ferjan lagðist að bryggju um þrjúleytið komust þungir vörubílarnir um borð ekki út vegna mikils bratta.

Að sögn Matthíasar Þorgrímssonar, skipstjóra Baldurs, voru vörubílarnir farnir að rekast niður að aftan vegna brattans. Vörubílarnir, sem voru sex talsins, ætluðu að flytja eldislax til Þorlákshafnar og býst Matthías við því að þeir nái ferðinni með skipi þar klukkan tíu í kvöld.

Skipstjórinn segir þetta gerast af og til en eingöngu þegar það hittir svona á í kringum háfjöru. Fólksbílar voru fyrir aftan vörubílana í skipinu og komust þeir því ekki heldur út fyrir en um fimmleytið þegar aðstæður bötnuðu, en Rúv greindi fyrst frá málinu. 

Hrönn Árnadóttir frá Patreksfirði er ein þeirra sem þurftu að bíða lengi eftir því að komast af stað með ferjunni frá Stykkishólmi. „Þetta er mjög slæm staða,“ segir hún og er ósátt við að háfjara verði til þess að vandamál skapist. „Vegirnir eru búnir að vera lokaðir og það er hrikalegt að fara hérna á milli,“ bætir hún við en færðin á vegum hefur verið slæm. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 28.4.24 442,03 kr/kg
Þorskur, slægður 28.4.24 575,91 kr/kg
Ýsa, óslægð 28.4.24 269,93 kr/kg
Ýsa, slægð 28.4.24 185,76 kr/kg
Ufsi, óslægður 28.4.24 155,67 kr/kg
Ufsi, slægður 28.4.24 185,80 kr/kg
Djúpkarfi 9.4.24 38,00 kr/kg
Gullkarfi 28.4.24 175,45 kr/kg
Litli karfi 28.4.24 7,72 kr/kg
Blálanga, óslægð 19.4.24 169,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

27.4.24 Hrefna ÍS 267 Landbeitt lína
Steinbítur 6.882 kg
Þorskur 284 kg
Skarkoli 47 kg
Samtals 7.213 kg
27.4.24 Sara ÍS 186 Grásleppunet
Grásleppa 1.632 kg
Þorskur 72 kg
Rauðmagi 28 kg
Samtals 1.732 kg
27.4.24 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Skarkoli 4.115 kg
Þorskur 155 kg
Sandkoli 47 kg
Þykkvalúra 20 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 4.341 kg
27.4.24 Þorlákur ÍS 15 Dragnót
Skarkoli 1.313 kg
Karfi 492 kg
Þorskur 320 kg
Ýsa 170 kg
Steinbítur 94 kg
Þykkvalúra 14 kg
Grásleppa 9 kg
Hlýri 7 kg
Samtals 2.419 kg

Skoða allar landanir »