„Áhættan er aldrei núll“ Kristín Ólafsdóttir skrifar 16. janúar 2021 13:30 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir. Vísir/vilhelm Sóttvarnalæknir segir hættuna á því að hið svokallaða breska afbrigði kórónuveirunnar verði ráðandi hér á landi, líkt og óttast er að gerist í Bandaríkjunum, velta á því hversu vel gangi á landamærum.
Tiltölulega fáir hafa greinst með kórónuveiruna innanlands síðustu daga en í dag greindist enginn, í fyrsta sinn síðan yfir hátíðarnar. Þá greindust fjórir með veiruna á landamærum. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir stöðu faraldursins góða eins og er. „Það er bara ánægjulegt að sjá að þessi þróun heldur áfram og vonum að hún geri það þrátt fyrir þessar tilslakanir þann 13. [janúar]. Vonandi passa sig bara allir áfram.“ Talsvert hefur verið fjallað um ný afbrigði veirunnar, sem kennd hafa verið við Bretland, Suður-Afríku og Brasilíu og talin eru smitast greiðar milli manna en önnur afbrigði. Þórólfur segir enn ekki komna skýra mynd á afbrigðin. „Það er ekkert sem hefur komið fram um að það valdi meiri og alvarlegri sjúkdómi, alvarlegri einkennum. Og sömuleiðis er ekkert nýtt að frétta af því hvort fyrri sýkingar verndi gegn þessum afbrigðum eða hvort bóluefni muni ekki örugglega vernda. Ég veit að það er í rannsókn, þetta eru erfiðar rannsóknir og taka tíma, en það hafa ekki komið neinar niðurstöður úr því. Þannig það á margt eftir að skýrast með það.“ Sóttvarnastofnun Bandaríkjanna býst við að breska afbrigðið verði orðið ráðandi þar í landi í mars. Er sama hætta uppi á teningnum hér á landi eða erum við í betri stöðu gagnvart þessu? „Auðvitað er hætta á að hún nái að dreifa sér í öllum löndum því hún er víða. Hvort að það er sama hætta hér eða ekki, það fer eftir því hvernig okkur gengur að halda landamærunum hreinum og ég held að með þessari nýju reglugerð um að allir þurfi að fara í skimun, og ef það gengur allt vel og eftirlitið gengur eins vel og við viljum þá erum við algjörlega að lágmarka áhættuna á því að veiran komist hér inn. En hvort hún geti gert það er erfitt að segja. Áhættan er aldrei núll þannig að það getur auðvitað gerst.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Alvarlegt umferðarslys í Eyjafirði Segir lág laun leikskólakennara mýtu Alltof mörg börn misstu af bólusetningu við mislingum Leyfisveitingin ekki brot á EES-samningnum Með 19 þúsund MDMA-töflur í ferðatöskunni Hafi líka reynt að bana eldri syni sínum Steinunn Ólína segir landráðamál í uppsiglingu Stofnaði lífi átta manna í hættu „í ábataskyni og á ófyrirleitinn hátt“ Fleiri löggur á leiðinni Seðlabankinn geti ekki annað en lækkað vexti Krefja Seðlabankann um vaxtalækkun Sjá meira