Ágúst Þór Jóhannsson, þjálfari U18 ára landsliðs kvenna í handknattleik, segir farir íslenska hópsins ekki sléttar í Belgrad þar sem liðið leikur þessa dagana.
Ísland keppir þar um sæti í lokakeppni EM og hefur Ísland nú þegar unnið Slóveníu en á eftir að mæta Slóvakíu og Serbíu.
Ágúst segir frá því í samtali við Ruv.is að mýs séu úti um allt á hótelinu sem íslenski hópurinn dvelur á í serbnesku höfuðborginni.
„Það er ekkert bara á einu herbergi, heldur bara á öllu hótelinu. Þetta er auðvitað óboðlegt,“ hefur Rúv eftir Ágústi og hann segir einnig að Íslendingarnir hafi kvartað yfir aðbúnaðinum.