Hafa áhyggjur af miklu álagi en hægara sagt en gert að stytta mótið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. mars 2021 11:31 Úr leik í Olís-deild karla. vísir/hulda margrét Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, segir að þar á bæ hafi menn áhyggjur af miklu leikjaálagi. Vandséð sé hins vegar hvernig hafi átt að leysa málin á annan hátt. Bikarkeppnin verður ekki slegin af. Guðmundur Hólmar Helgason, lykilmaður Selfoss, meiddist í upphitun fyrir leikinn gegn Stjörnunni í gær og óttast er að meiðslin séu alvarleg. Eftir leikinn sagði Halldór Sigfússon, þjálfari Selfoss, að mikið leikjaálag væri farið að segja til sín. „Ég held að hann sé mjög líklega með slitna hásin. Það er mjög sennilega leikjaálagið sem hefur áhrif á þetta. Það er kannski allt í lagi að vera með smá pillu á HSÍ með það, ég held að menn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hvað þeir voru a fara út í með leikjaálag á leikmennina. Það er allavega ekki verið að hugsa um velferð leikmannana í öllum þessum leikjum, það er ljóst,“ sagði Halldór við Vísi. „Vissulega er leikjaálagið mikið og það er ekkert launungarmál. Það er þáttur sem við ræddum við félögin og bentum á þegar við tókum ákvörðun um mótahald í janúar,“ sagði Róbert í samtali við Vísi í dag. Eftir um þriggja mánaða hlé hófst keppni í Olís-deild karla aftur í lok janúar. Þá voru aðeins fjórar umferðir búnar og átján umferðir eftir. Síðan keppni hófst aftur hefur verið spilað mjög þétt en liðin eiga að jafnaði tvo leiki í viku. Erfitt að stytta mótið „Við deildum áhyggjum okkar með félögunum að það væri þétt leikið. En það fannst ekki lausn á því hvernig við gátum minnkað karlamótið. Í tveggja umferða kerfi er lítið um sveigjanleika,“ sagði Róbert og bætti við að þriðja og síðasta umferðin í Olís-deild kvenna hafi verið slegin af. „Við sitjum uppi með þetta vandamál karlamegin og erum að skoða hvort það séu einhverjar lausnir og höldum þeirri vinnu áfram í samvinnu við félögin.“ Róbert Geir Gíslason er framkvæmdastjóri HSÍ.vísir/Baldur Hrafnkell Róbert segir að rætt hafi verið um að stytta mótið en það hafi ekki farið neitt lengra. „Það komu ekki útfærslur en það komu tillögur. En engin þeirra hlaut brautargengi. Niðurstaðan var að spila óbreytt mót karlamegin. Við lengdum aðeins í tímabilinu,“ sagði Róbert en HSÍ gaf sér frest til loka júní til að ljúka tímabilinu. Umhugað um heilsu leikmanna Róbert segir að HSÍ hafi vissulega haft áhyggjur af því að miklu leikjaálagi myndu fylgja meiðsli. „Vissulega höfðum við það og höfum alltaf áhyggjur af því hvernig mikið álag fer með leikmenn. Við erum að hugsa um heilsu leikmanna og getum ekkert hunsað það. Einn stærsti þátturinn í þessu er að leikmennirnir okkar komist í gegnum þetta eins heilir og mögulegt er.“ Erfitt að spila í landsleikjahléinu Róbert segir afar ólíklegt að spilað verði í landsleikjahléinu sem framundan er, þótt enginn leikmaður úr Olís-deildinni sé í íslenska landsliðshópnum. „Ég held að landsleikjahléið sé að mörgu leyti gott fyrir félögin varðandi endurheimt. En síðan erum við með landsliðsmenn, Færeyingana í Fram og KA og Litháann í Selfossi, þannig ég sé ekki hvernig við ætlum að spila mikið ofan í landsleikjahléið og án þessara leikmanna.“ Aðeins einn leikur hefur farið fram í Coca Cola-bikar karla. Róbert segir að það hafi ekki komið til greina að blása bikarkeppnina af. HSÍ gæti hins vegar lengt tímabilið. „Við myndum frekar horfa til þess, ef niðurstaðan er sú að við þurfum að bregðast við,“ sagði Róbert að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Mest lesið Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, úrslitakeppni í körfunni og margt fleira Sport Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira
Guðmundur Hólmar Helgason, lykilmaður Selfoss, meiddist í upphitun fyrir leikinn gegn Stjörnunni í gær og óttast er að meiðslin séu alvarleg. Eftir leikinn sagði Halldór Sigfússon, þjálfari Selfoss, að mikið leikjaálag væri farið að segja til sín. „Ég held að hann sé mjög líklega með slitna hásin. Það er mjög sennilega leikjaálagið sem hefur áhrif á þetta. Það er kannski allt í lagi að vera með smá pillu á HSÍ með það, ég held að menn hafi ekki alveg gert sér grein fyrir hvað þeir voru a fara út í með leikjaálag á leikmennina. Það er allavega ekki verið að hugsa um velferð leikmannana í öllum þessum leikjum, það er ljóst,“ sagði Halldór við Vísi. „Vissulega er leikjaálagið mikið og það er ekkert launungarmál. Það er þáttur sem við ræddum við félögin og bentum á þegar við tókum ákvörðun um mótahald í janúar,“ sagði Róbert í samtali við Vísi í dag. Eftir um þriggja mánaða hlé hófst keppni í Olís-deild karla aftur í lok janúar. Þá voru aðeins fjórar umferðir búnar og átján umferðir eftir. Síðan keppni hófst aftur hefur verið spilað mjög þétt en liðin eiga að jafnaði tvo leiki í viku. Erfitt að stytta mótið „Við deildum áhyggjum okkar með félögunum að það væri þétt leikið. En það fannst ekki lausn á því hvernig við gátum minnkað karlamótið. Í tveggja umferða kerfi er lítið um sveigjanleika,“ sagði Róbert og bætti við að þriðja og síðasta umferðin í Olís-deild kvenna hafi verið slegin af. „Við sitjum uppi með þetta vandamál karlamegin og erum að skoða hvort það séu einhverjar lausnir og höldum þeirri vinnu áfram í samvinnu við félögin.“ Róbert Geir Gíslason er framkvæmdastjóri HSÍ.vísir/Baldur Hrafnkell Róbert segir að rætt hafi verið um að stytta mótið en það hafi ekki farið neitt lengra. „Það komu ekki útfærslur en það komu tillögur. En engin þeirra hlaut brautargengi. Niðurstaðan var að spila óbreytt mót karlamegin. Við lengdum aðeins í tímabilinu,“ sagði Róbert en HSÍ gaf sér frest til loka júní til að ljúka tímabilinu. Umhugað um heilsu leikmanna Róbert segir að HSÍ hafi vissulega haft áhyggjur af því að miklu leikjaálagi myndu fylgja meiðsli. „Vissulega höfðum við það og höfum alltaf áhyggjur af því hvernig mikið álag fer með leikmenn. Við erum að hugsa um heilsu leikmanna og getum ekkert hunsað það. Einn stærsti þátturinn í þessu er að leikmennirnir okkar komist í gegnum þetta eins heilir og mögulegt er.“ Erfitt að spila í landsleikjahléinu Róbert segir afar ólíklegt að spilað verði í landsleikjahléinu sem framundan er, þótt enginn leikmaður úr Olís-deildinni sé í íslenska landsliðshópnum. „Ég held að landsleikjahléið sé að mörgu leyti gott fyrir félögin varðandi endurheimt. En síðan erum við með landsliðsmenn, Færeyingana í Fram og KA og Litháann í Selfossi, þannig ég sé ekki hvernig við ætlum að spila mikið ofan í landsleikjahléið og án þessara leikmanna.“ Aðeins einn leikur hefur farið fram í Coca Cola-bikar karla. Róbert segir að það hafi ekki komið til greina að blása bikarkeppnina af. HSÍ gæti hins vegar lengt tímabilið. „Við myndum frekar horfa til þess, ef niðurstaðan er sú að við þurfum að bregðast við,“ sagði Róbert að lokum. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Mest lesið Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti Veikur og meiddur Doncic fór á kostum og Boston flaug áfram Körfubolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Dagskráin í dag: Besta deild kvenna, úrslitakeppni í körfunni og margt fleira Sport Fleiri fréttir Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Bjarki Már og félagar úr leik Haukakonur sópuðu Fram í sumarfrí og mæta Val í úrslitum Róbert fer frá Drammen og vill spila nærri Andreu Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sjá meira