Jólakettinum pakkað saman

Hlutverki jólakattarins er lokið í ár.
Hlutverki jólakattarins er lokið í ár.

Síðustu ummerki jólanna voru afmáð úr miðbæ Reykjavíkur í gær þegar jólakettinum og öllu hans hafurtaski var úthýst.

Vaskur hópur borgarstarfsmanna sá um að koma kettinum af stallinum. Ekki seinna vænna enda rúm vika síðan landsmenn kvöddu jólin og síðasti jólasveinninn hélt til fjalla.

Jólakötturinn var fyrst settur upp á Lækjartorgi 2018 og hefur sett svip sinn á aðventuna í miðbænum æ síðan.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert