Stjörnur A-riðils: Fyrirliði Bayern, undraverður bakvörður og einn albesti framherji allra tíma Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 3. júlí 2022 10:00 Ada Hegerberg er spennt fyrir EM. En þú? EPA-EFE/TERJE PEDERSEN Vísir heldur áfram að telja niður í Evrópumót kvenna sem fram fer í Englandi. Ísland er að fara á sitt fjórða Evrópumót í röð en hér að neðan verður farið yfir bestu leikmenn landanna sem skipa A-riðil. Þau eru Austurríki, England, Norður-Írland og Noregur.
Það má eflaust færa ágætis rök fyrir því að það séu fleiri en einn leikmaður sem eiga skilið að vera titlaðar „stjörnur“ sinna liða. Hér að neðan höldum við okkur þó við einn leikmenn í hverju liði. Sarah Zadrazil (Austurríki) Sarah Zadrazil í leik með Bayern.Christian Kaspar-Bartke/Getty Images Hin 29 ára gamla Zadrazil spilar með Íslendingaliði Bayern München og ber þar fyrirliðabandið. Hefur spilað í Þýskalandi frá árinu 2016. Leikur vanalega á miðjunni og er lýst sem leikmanni með mikla sendingagetu ásamt því að vera mjög lunkin með boltann. View this post on Instagram A post shared by Sarah Zadrazil (@sarah_zadrazil27) Lucy Bronze (England) Lucy Bronze er með betri leikmönnum heims í dag.James Gill/Getty Images Hin þrítuga gamla Lucy Bronze gekk nýverið í raðir Spánarmeistara Barcelona en hefur einnig leikið með Lyon, Manchester City Liverpool, Everton og Sunderland á ferli sínum. Fæddist í Skotlandi en á enska móður og portúgalskan föður, virðist sú blanda virka vel en Bronze er með hægri bakvörðum, og leikmönnum, heims í dag þrátt fyrir að hafa gengist undir fimm hnéaðgerðir á ferli sínum. View this post on Instagram A post shared by Lucy Bronze (@lucybronze) Rachel Furness (Norður-Írland) Rachel Furness er klár.Karl Bridgeman/Getty Images Hin 33 ára gamla Furness leikur í dag með Liverpool og mun því leika í ensku úrvalsdeildinni á nýjan leik á næsta ári. Er markahæsti leikmaður N-Írlands frá upphafi og er með ágætis tengingu við Ísland þar sem hún lék með Grindavík sumarið 2010. View this post on Instagram A post shared by Rachel Furness (@furness_4_) Ada Hegerberg (Noregur) Markavélin Ada Hegerberg lætur ekki smá rigningu hafa áhrif á sig.EPA-EFE/Stian Lysberg Solum Hin 26 ára gamla Ada Martine Stolsmo Hegerberg er ein besta knattspyrnukona allra tíma. Sneri til baka í vetur eftir gríðarlega erfið hnémeiðsli og spilaði stóran þátt í því að Lyon sigraði Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Er markaskorari af guðsnáð sem hefur skorað 154 mörk í 134 leikjum fyrir Lyon og 42 mörk í 70 leikjum fyrir norska landsliðið. Stóð í stappi við norska knattspyrnusambandið þar sem hún taldi halla á kvennalandsliðið. Er nú snúin aftur og missa varnarmenn annarra landa A-riðils eflaust svefn yfir því að mæta Noregi. View this post on Instagram A post shared by Ada Stolsmo Hegerberg (@ahegerberg)
Fótbolti EM 2022 í Englandi Mest lesið Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Enski boltinn Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Handbolti Einbeitir sér að því að komast í NBA frekar en að spila með pabba sínum Körfubolti „Núna ætla ég að klára þetta þar sem þetta er síðasta tímabilið mitt hérna“ Sport Tiger trúir enn á sjálfan sig: „Líður enn eins og ég geti unnið golfmót“ Golf Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ Enski boltinn Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Íslenski boltinn „Þetta var eitt það erfiðasta sem ég hef farið í gegnum“ Sport Birna með slitið krossband og missir af úrslitaeinvíginu Körfubolti Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Handbolti Fleiri fréttir Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ „Þetta var ótrúlega erfitt“ Vlahovic tryggði Juventus bikarmeistaratitilinn United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð KA sneri taflinu við í seinni hálfleik Gísli lagði upp í Íslendingaslag og Elfsborg vann risasigur Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Ásdís Karen kom Lilleström á bragðið Kjósa um hvort notkun VAR verði hætt Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Gæti haldið áfram eftir allt saman FIFA íhugar að leyfa deildarleiki í öðrum löndum Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Fækka landsleikjagluggum og koma á fót HM félagsliða Segja að Mbappé og forseti PSG hafi öskrað á hvor annan Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Jói Kalli hættir hjá landsliðinu og fer til Danmerkur Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sagði sína menn hafa þurft að þjást og hrósaði varamarkverðinum Spánarmeistarar Real skoruðu fimm „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ Sjá meira