Foreldrar byssumannsins í Michigan ákærðir Vésteinn Örn Pétursson skrifar 3. desember 2021 23:46 Karen McDonald, aðalsaksóknarinn í málinu, viðurkennir að óvenjulegt sé að foreldrar sakborninga séu ákærðir í málum sem þessum. Scott Olson/Getty Foreldrar hins fimmtán ára Ethans Crumbley, sem er ákærður fyrir að hafa skotið fjóra táninga til bana og sært sjö til viðbótar í skólanum sínum í Oxford í Michigan-ríki í Bandaríkjunum á þriðjudaginn, hafa verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi.
Samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins er foreldrunum, James og Jennifer Crumbley, gefið að sök að hafa hundsað viðvörunarmerki í atferli sonar síns í aðdraganda árásarinnar. Yfirvöld í Oakland-sýslu segja leit að foreldrunum nú standa yfir og að handtökuskipun á hendur þeim hafi verið gefin út. Þau eru ákærð í fjórum ákæruliðum hvort. Hafi hundsað augljós hættumerki Karen McDonald, aðalsaksóknarinn í málinu viðurkennir, að óvenjulegt sé að foreldrar sakborninga í málum sem þessum sæti ákæru. Hins vegar sé ýmislegt sem tengi foreldrana við málið. Þannig segja saksóknarar að Ethan hafi verið með föður sínum þegar sá síðarnefndi keypti byssuna sem Ethan notaði við skotárásina. Byssan var keypt aðeins fjórum dögum fyrir árásina. Í kjölfarið birti Ethan mynd af byssunni á samfélagsmiðlum og greindi frá því að byssan væri hans eign. Þá segja saksóknarar að daginn fyrir árásina hafi kennari komið að Ethan þar sem hann leitaði að skotfærum til þess að kaupa á netinu. Það hafi leitt til fundar með skólastjórnendum. Eftir að hafa verið látin vita af málinu hafi móðir Ethans síðan sent honum eftirfarandi smáskilaboð. „Ég er ekki reið við þig. Þú verður að læra að láta ekki ná þér.“ Það hafi síðan verið á þriðjudagsmorgun, sama dag og árásin varð, sem foreldrar Ethans hafi verið kallaðir í skólann á neyðarfund eftir að kennarar fundu miða eftir son þeirra. Á miðanum hafi verið teikningar af byssum og blóði, ásamt frösum á borð við „Hugsanirnar hætta ekki,“ „hjálp,“ og „blóð úti um allt.“ Í kjölfarið hafi skólastjórnendur lagt til að drengurinn myndi leita sér hjálpar fagaðila. Foreldrarnir þvertóku þó fyrir að taka drenginn úr skólanum þann daginn og spurðu hann ekki hvort hann hefði tekið byssuna með sér í skólann. Þá leituðu þau í töskunni hans að byssunni. Brugðust við of seint Saksóknarar segja að klukkan 13:22 sama dag hafi móðir Ethans sent honum smáskilaboðin: „Ethan, ekki gera það.“ Nokkrum mínútum síðar hafi faðir Ethans hringt á lögregluna þegar hann varð þess áskynja að byssan hans, sem hann hafði keypt ásamt syni sínum nokkrum dögum áður, væri horfin. Yfirvöld segja hins vegar að á þeim tímapunkti hafi Ethan þegar komið út af baðherberginu þar sem hann undirbjó árásina og verið byrjaður að skjóta á samnemendur sína. Saksóknarar telja að með ákæru á hendur foreldrunum sé verið að senda skýr skilaboð til foreldra um þá ábyrgð sem þeir bera, sem og skilaboð um ábyrga umgengni við skotvopn.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira