Boris Johnson er hættur við að sleppa sóttkví Árni Sæberg og Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifa 18. júlí 2021 14:40 Boris Johnson ætlaði að sleppa sóttkví, þrátt fyrir að hafa verið útsettur fyrir smiti, og fara í dagleg Covid-próf í staðin. Hann hefur nú hætt við það. Leon Neal/Getty Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, og Rishi Sunak fjármálaráðherra voru útsettir fyrir smiti eftir að þeir funduðu með Sajid Javid heilbrigðisráðherra, sem reyndist smitaður af Covid-19. Upphaflega ætluðu ráðherrarnir tveir ekki að fara í sóttkví.
Javid greindist smitaður af veirunni í gærmorgun og fór strax í einangrun. Hann hafði farið í einkennasýnatöku eftir að hafa fundið fyrir slappleika og hvatti alla sem fundið hafa fyrir einkennum til að fara í sýnatöku. Fréttastofa Sky greinir frá. Strax kom í ljós að Johnson og Sunak hafi verið útsettir fyrir smiti en fyrst var ætlunin að þeir færu ekki í sóttkví heldur færu í Covid-19 próf daglega í staðinn. Í kjölfar þessa voru þeir harðlega gagnrýndir og nú hefur það verið tilkynnt að þeir muni eftir allt saman fara í sóttkví. Þetta þýðir að forsætisráðherrann sjálfur verður í sóttkví þegar miklar afléttingar á takmörkunum taka í gildi á mánudag, en dagurinn hefur fengið viðurnefnið Frelsisdagurinn eða „freedom day.“ Flestum takmörkunum á Englandi verður aflétt þá. Keir Starmer, leiðtogi verkamannaflokksins, sagði í dag að þessi U-beygja stjórnarinnar sé til marks um að mikil ringulreið ríki innan ríkisstjórnarinnar. Johnson og Sunak hafi enn og aftur verið gripnir við það að halda að reglurnar gildi ekki um þá. „Almenningur hefur gert svo margt til að fylgja þessum reglum. Á tímum sem þessum, þar sem við verðum að viðhalda trúnni á að sóttkví virki munu foreldrar, vinnandi fólk og fyrirtæki velta því fyrir sér hvað sé eiginlega í gangi á Downingstræti,“ sagði Starmer í dag. „Hegðun forsætisráðherrans skapar ringulreið, kemur illa út fyrir ríkisstjórnina og hefur hræðilegar afleiðingar fyrir breskan almenning.“
Bretland England Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Fleiri fréttir Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Sjá meira