Félögin hvött til að senda fleiri konur Sindri Sverrisson skrifar 25. janúar 2022 15:02 Þó að þriðjungur iðkenda í fótbolta á Íslandi sé kvenkyns þá hafa kvenkyns þingfulltrúar ekki verið nægilega margir á ársþingum KSÍ að mati nýverandi stjórnar. vísir/hulda margrét Stjórn Knattspyrnusamband Íslands hefur sent knattspyrnufélögum landsins hvatningu um að huga að kynjaskiptingu á komandi ársþingi KSÍ. „Við þurfum fleiri konur í fótbolta,“ segir í tilkynningu frá stjórn KSÍ sem kosin var til bráðabirgða á aukaþingi í byrjun október. Fyrri stjórn sagði af sér eftir áskorun aðildarfélaga í tengslum við viðbrögð við meintum kynferðisofbeldismálum landsliðsmanna. Ársþingið fer fram 26. febrúar og á hvert aðildarfélag rétt á að senda 1-4 fulltrúa á þingið. Flesta fulltrúa hafa félögin sem eiga lið í efstu deild karla og/eða kvenna á næstu leiktíð eða fjóra, félög í næstefstu deildum eiga þrjá fulltrúa, félög í 2. deild karla tvo fulltrúa, og önnur félög einn fulltrúa. Í tilkynningu stjórnar KSÍ er bent á að þó að fleiri konur hafi mætt á síðustu þing en áður þá sé það enn þannig að fjöldi kvenna á þinginu endurspegli alls ekki þá staðreynd að þriðjungur skráðra iðkenda á Íslandi sé kvenkyns.
Við þurfum fleiri konur í fótbolta,“ segir í tilkynningu frá stjórn KSÍ sem kosin var til bráðabirgða á aukaþingi í byrjun október. Fyrri stjórn sagði af sér eftir áskorun aðildarfélaga í tengslum við viðbrögð við meintum kynferðisofbeldismálum landsliðsmanna. Ársþingið fer fram 26. febrúar og á hvert aðildarfélag rétt á að senda 1-4 fulltrúa á þingið. Flesta fulltrúa hafa félögin sem eiga lið í efstu deild karla og/eða kvenna á næstu leiktíð eða fjóra, félög í næstefstu deildum eiga þrjá fulltrúa, félög í 2. deild karla tvo fulltrúa, og önnur félög einn fulltrúa. Í tilkynningu stjórnar KSÍ er bent á að þó að fleiri konur hafi mætt á síðustu þing en áður þá sé það enn þannig að fjöldi kvenna á þinginu endurspegli alls ekki þá staðreynd að þriðjungur skráðra iðkenda á Íslandi sé kvenkyns. Skilaboð stjórnar KSÍ: Við þurfum fleiri konur í fótbolta. Þriðjungur skráðra knattspyrnuiðkenda (leikmanna) á Íslandi er kvenkyns, en þegar kemur að öðrum hlutverkum í knattspyrnuhreyfingunni er hlutfall kvenna mun lægra. Þessu þurfum við að breyta. Fyrir ársþingið 2020 samþykkti stjórn KSÍ sérstaka hvatningu til aðildarfélaga um að huga að kynjaskiptingu við val á þingfulltrúum. Úr varð að á þinginu, sem haldið var á Ólafsvík, voru fleiri konur þingfulltrúar en nokkru sinni fyrr. Á þinginu 2021 fjölgaði konum aftur, en betur má ef duga skal og fjöldi kvenkyns þingfulltrúa á ársþingum hefur hvergi nærri endurspeglað hlutfall kvenna og stúlkna á meðal iðkendanna sjálfra. Stjórn KSÍ hvetur því aðildarfélög til að huga vel og vandlega að kynjaskiptingu við val á þingfulltrúum fyrir 76. ársþing KSÍ, sem fram fer þann 26. febrúar næstkomandi. Þetta skiptir verulegu máli fyrir knattspyrnuhreyfinguna okkar.
Skilaboð stjórnar KSÍ: Við þurfum fleiri konur í fótbolta. Þriðjungur skráðra knattspyrnuiðkenda (leikmanna) á Íslandi er kvenkyns, en þegar kemur að öðrum hlutverkum í knattspyrnuhreyfingunni er hlutfall kvenna mun lægra. Þessu þurfum við að breyta. Fyrir ársþingið 2020 samþykkti stjórn KSÍ sérstaka hvatningu til aðildarfélaga um að huga að kynjaskiptingu við val á þingfulltrúum. Úr varð að á þinginu, sem haldið var á Ólafsvík, voru fleiri konur þingfulltrúar en nokkru sinni fyrr. Á þinginu 2021 fjölgaði konum aftur, en betur má ef duga skal og fjöldi kvenkyns þingfulltrúa á ársþingum hefur hvergi nærri endurspeglað hlutfall kvenna og stúlkna á meðal iðkendanna sjálfra. Stjórn KSÍ hvetur því aðildarfélög til að huga vel og vandlega að kynjaskiptingu við val á þingfulltrúum fyrir 76. ársþing KSÍ, sem fram fer þann 26. febrúar næstkomandi. Þetta skiptir verulegu máli fyrir knattspyrnuhreyfinguna okkar.
KSÍ Íslenski boltinn Jafnréttismál Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Valur - Víkingur | Íslands- og bikarmeistararnir mætast Í beinni: Þór/KA - Þróttur | Sandra María verið óstöðvandi Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Sjá meira