Handknattleiksmaðurinn Hergeir Grímsson gengur til liðs við Hauka frá Stjörnunni að yfirstandandi tímabili loknu.
Hergeir, sem er 27 ára gamall, hefur verið lykilmaður í Stjörnuliðinu undanfarin tvö ár og skoraði hann meðal annars 109 mörk í 22 leikjum í úrvalsdeildinni í vetur.
Hergeir er uppalinn Selfyssingur en hann varð Íslandsmeistari með Selfossi árið 2019. Þá er hann fjölhæfur leikmaður sem getur bæði leikið sem miðjumaður og í vinstra horni.