FÍA stefnir Bláfugli og SA vegna ólögmætra uppsagna Eiður Þór Árnason skrifar 26. febrúar 2021 13:37 Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Vísir/Arnar Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hefur höfðað mál fyrir Félagsdómi vegna uppsagna flugmanna Bláfugls sem félagið telur ólögmætar. Að sögn FÍA er málið til skoðunar hjá Vinnumálastofnun auk þess sem ábending hefur verið send til skattyfirvalda vegna meintrar gerviverktöku.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá FÍA sem segist með þessu vera að taka „næsta skref í baráttunni gegn félagslegum undirboðum og gerviverktöku.“ „Niðurstaða Félagsdóms mun skapa mikilvægt fordæmi fyrir því hvort heimilt sé að segja upp launafólki sem starfar eftir kjarasamningi og ráða inn gerviverktaka í staðinn á meira en helmingi lægri launum. Einnig hvort heimilt sé að ráða inn gerviverktaka til að ganga inn í störf þeirra sem eru í löglega boðuðu verkfalli.“ Sagt upp í miðjum kjaraviðræðum Að sögn FÍA var öllum flugmönnum fragtflugfélagsins Bláfugls sem eru í stéttarfélagi sagt upp störfum undir lok síðasta árs, í miðjum kjaraviðræðum. Í framhaldi af því hafi flugfélagið tilkynnt að framvegis muni það einungis ráða „sjálfstætt starfandi flugmenn,“ sem FÍA segir lýsa gerviverktöku. „Flugmaður sem starfar fyrir flugrekanda getur í eðli sínu ekki starfað sem verktaki þar sem hann uppfyllir ekki skilyrði um verktöku.“ Alþýðusamband Íslands hefur sömuleiðis fordæmt aðgerðir Bláfugls og kallað þær enn eina tilraunina til félagslegra undirboða í flugrekstri hér á landi. „Nú er það Bláfugl með fulltingi SA sem hefur sagt upp flugmönnum í miðri kjaradeilu með hótun um að „leita annarra leiða“ til að lækka launakostnað. Með slíkri framgöngu er vegið að grundvallarréttindum stéttarfélaga og þar með öllu launafólki á Íslandi. Atvinnurekendum er óheimilt að reyna að hafa áhrif á vinnudeilur eða stéttarfélagsaðild með uppsögn úr vinnu eða hótunum um slíka uppsögn,“ sagði í yfirlýsingu ASÍ. Í tilkynningu Bláfugls vegna uppsagnanna í lok árs 2020 kom fram að þær væru gerðar í hagræðingarskyni og að flugmennirnir ellefu væru langlaunahæstu starfsmenn félagsins. FÍA segir stöðuna grafalvarlega og að flugfélagið vegi með þessu gróflega að lögum og reglum íslensks vinnumarkaðar, með fulltingi Samtaka atvinnulífsins sem fari með samningsumboðið fyrir hönd Bláfugls. „Sé þetta látið óátalið af yfirvöldum má af því leiða að heimilt sé að segja upp launafólki landsins sem starfa á grundvelli kjarasamninga og ráða inn gerviverktaka í þeirra stað til að lækka laun verulega og svipta launafólk áunnum réttindum á borð við veikindarétt og orlof.“
Fréttir af flugi Vinnumarkaður Kjaramál Tengdar fréttir Bláfugl, SA og gervivertaka Það hefur verið með hreinum ólíkindum að vera þátttakandi í kjaraviðræðum FÍA og Bláfugls undanfarnar vikur og mánuði. Sá málflutningur og aðgerðir sem boðið hefur verið upp á af hálfu Bláfugls er bein ógn við vinnumarkaðinn á Íslandi og að mínu mati liggur allur vinnumarkaðurinn undir í þessari deilu. 10. febrúar 2021 08:00 Boðar Bláfugl endalok stéttarfélaga? Þann 30. desember síðastliðinn fengu 11 flugmenn Bláfugls uppsagnarbréf frá fyrirtækinu. Þessir flugmenn eiga það sameiginlegt að vera í stéttarfélagi. Aðrir flugmenn félagsins eru gerviverktakar og halda óbreyttu fyrirkomulagi. 7. janúar 2021 15:00 Bláfugl í eigu Avia Solutions Group Kaup Avia Solutions Group á Bláfugli ehf. eru gengin í gegn. 31. mars 2020 11:40 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Fleiri fréttir Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Sjá meira
Bláfugl, SA og gervivertaka Það hefur verið með hreinum ólíkindum að vera þátttakandi í kjaraviðræðum FÍA og Bláfugls undanfarnar vikur og mánuði. Sá málflutningur og aðgerðir sem boðið hefur verið upp á af hálfu Bláfugls er bein ógn við vinnumarkaðinn á Íslandi og að mínu mati liggur allur vinnumarkaðurinn undir í þessari deilu. 10. febrúar 2021 08:00
Boðar Bláfugl endalok stéttarfélaga? Þann 30. desember síðastliðinn fengu 11 flugmenn Bláfugls uppsagnarbréf frá fyrirtækinu. Þessir flugmenn eiga það sameiginlegt að vera í stéttarfélagi. Aðrir flugmenn félagsins eru gerviverktakar og halda óbreyttu fyrirkomulagi. 7. janúar 2021 15:00
Bláfugl í eigu Avia Solutions Group Kaup Avia Solutions Group á Bláfugli ehf. eru gengin í gegn. 31. mars 2020 11:40