Fótbolti

Krafðist þess að ákvörðunin um Kolbein yrði dregin til baka

Sindri Sverrisson skrifar
Kolbeinn Sigþórsson í landsleik gegn Rúmeníu fyrir ári síðan. Hann hefur leikið 64 A-landsleiki og skorað í þeim 26 mörk.
Kolbeinn Sigþórsson í landsleik gegn Rúmeníu fyrir ári síðan. Hann hefur leikið 64 A-landsleiki og skorað í þeim 26 mörk. vísir/vilhelm

Lögmaður Kolbeins Sigþórssonar krafðist þess að stjórn KSÍ afturkallaði þá ákvörðun sína að draga Kolbein út úr landsliðshópnum sem lék þrjá leiki í undankeppni HM í fótbolta í byrjun mánaðarins. Kolbeinn kemur ekki til greina í næsta landsliðshóp.

Stjórn KSÍ ákvað að Kolbeinn viki sæti í síðasta landsliðshópi, á örlagaríkum fundi sunnudaginn 29. ágúst. Fyrr á fundinum hafði Guðni Bergsson formaður sagt af sér og var hann því farinn af fundinum þegar mál Kolbeins var rætt.

Kolbeinn hafði, án þess að vera nafngreindur, tveimur dögum fyrr verið sakaður um ofbeldi, meðal annars kynferðislegt, gegn tveimur konum. Ofbeldið átti sér stað haustið 2017 og var málið útkljáð með samkomulagi um miskabætur vorið 2018.

Í fundargerð á vef KSÍ, frá fundinum 29. ágúst, segir: „Stjórn KSÍ samþykkti að leikmaður A landsliðs karla (nafn leikmanns fært í trúnaðarbók) verði ekki með landsliði Íslands í komandi landsliðsglugga í ljósi upplýsinga sem fram hafa komið, stöðu mála og til að tryggja umgjörð komandi leikja og hnökralausa þátttöku Íslands í undankeppni HM. Þannig yrði skapað svigrúm til að fara betur yfir stöðu leikmannsins.“

Stjórn KSÍ fundaði aftur mánudaginn 30. ágúst þar sem hún ákvað að segja af sér og boða til aukaþings. Stjórnin fundaði svo ekki aftur fyrr en eftir landsleikina þrjá, gegn Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi, sem Kolbeinn missti af.

Þarf ekki að taka ákvörðun vegna næstu landsleikja

Á þeim fundi, fimmtudaginn 9. september, var lagt fram erindi lögmanns Kolbeins með kröfu um að ákvörðunin um að draga hann úr landsliðinu yrði afturkölluð. Utanaðkomandi lögmaður mætti á fundinn og fór yfir drög að svarbréfi, og stjórn KSÍ fól svo Gísla Gíslasyni, fyrsta varaformanni, að ganga frá endanlegu orðalagi þess með lögmanni KSÍ. Ekki kemur fram í fundargerð hvert svarið nákvæmlega var.

Ekki kemur heldur fram hver lögmaðurinn sem sendi erindið til KSÍ er en Almar Þór Möller og Hörður Felix Harðarson gættu hagsmuna Kolbeins þegar málið kom upp á sínum tíma.

Ljóst er að stjórn KSÍ mun ekki þurfa að taka ákvörðun um það hvort hún heimili Arnari Þór Viðarssyni að velja Kolbein í næstu viku, þegar næsti landsliðshópur verður tilkynntur. Kolbeinn er samkvæmt tilkynningu IFK Gautaborgar í gær á leið í aðgerð vegna meiðsla.

Gautaborg ákvað að segja ekki upp samningi Kolbeins heldur styðja við bakið á honum í endurhæfingu vegna misgjörða sinna og vegna meiðslanna.


Tengdar fréttir

Fundirnir sem leiddu til falls Guðna og stjórnar KSÍ

Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, lagði til að hann myndi víkja sæti tímabundið en stjórn sambandsins samþykkti ekki þá tillögu. Í kjölfarið ákvað Guðni að segja af sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×