Þýskaland komið á HM eftir stórsigur

Þýskaland er komið á HM í Katar.
Þýskaland er komið á HM í Katar. AFP

Þýskaland tryggði sér í kvöld efsta sæti J-riðils Íslands í undankeppni HM karla í fótbolta og sæti á HM í Katar á næsta ári í leiðinni. Þýska liðið vann sannfærandi 4:0-sigur á Norður-Makedóníu á útivelli.

Kai Havertz, leikmaður Chelsea á Englandi, kom Þýskalandi yfir á 50. mínútu og liðsfélagi hans Timo Werner skoraði tvö mörk á 70. og 73. mínútu og kom Þýskalandi í 3:0. Jamal Musiala bætti við fjórða markinu undir lokin.

Rúmenar eru komnir upp í annað sæti riðilsins eftir 1:0-heimasigur á Armeníu. Alexandru Mitrita skoraði sigurmarkið á 26. mínútu. Þýskaland er með 21 stig og Rúmenía 13. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert