Gerðu húsleit á heimili hjóna sem miðuðu byssum á mótmælendur Kristín Ólafsdóttir skrifar 11. júlí 2020 23:15 Mark og Patricia McCloskey taka á móti mótmælendum fyrir utan heimili þeirra í St. Louis þann 28. júní síðastliðinn. Vísir/AP
Lögregla í borginni St. Louis í Missouri gerði í gærkvöldi húsleit á heimili hjóna sem brugðu byssum á mótmælendur í júní. Myndbönd af atvikinu vöktu mikla athygli á samfélagsmiðlum. Lögreglumenn fóru inn á heimili hjónanna á föstudagskvöld og gerðu þar upptækan hálfsjálfvirkan riffil. Svo virðist sem þar sé um að ræða riffilinn sem lögfræðingurinn Mark McCloskey hélt á er hann tók á móti mótmælendum í St. Louis þann 28. júní. Hópurinn var þá á leið að nærliggjandi heimili borgarstjóra St. Louis til að mótmæla ofbeldi lögreglu í garð svartra Bandaríkjamanna. Patricia McCloskey, eiginkona Marks og einnig lögfræðingur, miðaði skammbyssu sinni á mótmælendur. McCloskey-hjónin, sem bæði eru hvít, segjast hafa óttast um líf sitt umræddan dag og þess vegna hafi þau gripið til vopna. Í myndböndum sem birst hafa á samfélagsmiðlum sjást þau hrópa á mótmælendurna og segja þeim að yfirgefa svæðið. Nokkrir úr hópnum heyrast hrópa á móti að enginn ætli sér að gera þeim hjónum nokkurt mein. Í myndbandinu hér fyrir ofan má sjá samskipti hjónanna við mótmælendur. Þar má einnig sjá Mark McCloskey lýsa því í viðtali að hann hafi óttast að mótmælendurnir myrtu þau hjónin „á örskotsstundu“. Þegar myndbönd af atvikinu hófu að vekja athygli á samfélagsmiðlum sagði Kimberly Gardner, aðalsaksóknari St. Louis-borgar, að málið yrði rannsakað. Hún kvaðst jafnframt uggandi yfir myndböndunum og sagði að kannað yrði hvort hjónin hefðu brotið á rétti borgara til friðsamlegra mótmæla.
Bandaríkin Dauði George Floyd Tengdar fréttir Steyttu hnefa og krupu jafn lengi og lögreglumaðurinn kraup á hálsi Floyd MLS-deildin í fótbolta fór aftur af stað í gær. Alls tóku 200 leikmenn deildarinnar þátt í mótmælum fyrir leik Orlando City og Inter Miami. 9. júlí 2020 11:30 „Þú munt drepa mig, maður“ Bandaríski fyrrverandi lögreglumaðurinn Derek Chauvin, sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis í Minnesota í Bandaríkjunum í lok maí á þessu ári, sagði Floyd ítrekað að hætta að tala á meðan hann hélt hné sínu að hálsi hans í nærri átta mínútur. 9. júlí 2020 06:52 Rasískir undirtónar Trump skjóta repúblikönum skelk í bringu Frammámenn í Repúblikanaflokknum er sagðir óttast um afdrif flokksins í kosningum í haust vegna þess hversu hart Donald Trump forseti gengur nú fram í að ala á kynþáttaóróa í landinu. 4. júlí 2020 23:27 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ísraelar gera árás á Íran Erlent Hættir með Matargjafir á Akureyri með sorg í hjarta Innlent Straumhvörf í veðrinu Innlent Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum Innlent Kæra bónda eftir að 29 naut fundust dauð Innlent Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Erlent Stjórnarmaður í RÚV segir opinber hlutafélög fé án hirðis Innlent Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Erlent Segjast hafa skotið niður verðmæta sprengjuflugvél Erlent Helga ekki tilbúin að henda inn handklæðinu Innlent Fleiri fréttir Segjast hafa skotið niður verðmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Mannskæð loftárás Rússa í Norður-Úkraínu Toppurinn á spírunni fundinn: „Margir í sjokki og enn að ná sér“ Kóralrif fölna á heimsvísu í fjórða skiptið á þremur áratugum Eins og hálfs árs úrkoma á einum sólarhring í Dubai Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Greitt fyrir aðgengi andstæðinga þungunarrofs inn á heilbrigðismiðstöðvar Áætla að yfir 50.000 rússneskir hermenn hafi fallið í átökunum Sjá meira
Steyttu hnefa og krupu jafn lengi og lögreglumaðurinn kraup á hálsi Floyd MLS-deildin í fótbolta fór aftur af stað í gær. Alls tóku 200 leikmenn deildarinnar þátt í mótmælum fyrir leik Orlando City og Inter Miami. 9. júlí 2020 11:30
„Þú munt drepa mig, maður“ Bandaríski fyrrverandi lögreglumaðurinn Derek Chauvin, sem varð valdur að dauða George Floyd í Minneapolis í Minnesota í Bandaríkjunum í lok maí á þessu ári, sagði Floyd ítrekað að hætta að tala á meðan hann hélt hné sínu að hálsi hans í nærri átta mínútur. 9. júlí 2020 06:52
Rasískir undirtónar Trump skjóta repúblikönum skelk í bringu Frammámenn í Repúblikanaflokknum er sagðir óttast um afdrif flokksins í kosningum í haust vegna þess hversu hart Donald Trump forseti gengur nú fram í að ala á kynþáttaóróa í landinu. 4. júlí 2020 23:27