fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Greina frá skelfilegum aðstæðum á Júlíusi Geirmundssyni -„Skipverjum haldið nauðugum og veikum við vinnu út á sjó“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Föstudaginn 23. október 2020 17:35

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Verkalýðsfélag Vestfirðinga hélt fund með skipverjum af skipinu Júlíusi Geirmundssyni í framhaldi af hópsmiti sem kom upp um borð. Þetta kemur fram á vefsíðu Verkalýðsfélags Vestfirðinga.

Á þriðja tug skipverja sóttu fundinn, sem var bæði staðfundur fyrir þá sem ekki voru um borð í umræddri veiðiferð sem og fjarfundur fyrir þá sem höfðu smitast af COVID-19 og voru í einangrun eða sóttkví.

„Ljóst er af frásögnum skipverja að ástandið um borð varð mjög alvarlegt og skipverjar margir hverjir alvarlega veikir með mikinn hita, öndunarörðuleika ásamt fleiri þekktum Covid einkennum“

Samkvæmt Verkalýðsfélagi Vestfirðinga töldu hvorki útgerð né skipstjóri ástæðu til að tilkynna um veikindin til sóttvarnaryfirvalda eða Landhelgisgæslu eða halda skipi til hafnar þannig að skipverjar kæmust í sýnatöku og til að fyrirbyggja frekara smit.

„„Hver er að ljúga að okkur?“ spyrja skipverjar og vísa til þess að umdæmislæknir sóttvarna hafði lýst yfir að hann vildi fá skipverja í sýnatöku á þriðja degi veiðiferðar. En það er á skjön við það sem kom fram í Kastljósviðtali við sóttvarnarlækni í gær þar sem sóttvarnarlæknir sagði að ekkert hafi bent til þess að um hópsmit væri að ræða“ 

Í tilkynningu segir jafnframt að allt frá öðrum degi veiðiferðarinnar hafi skipstjóri skipað mönnum að vera í einangrun á meðan þeir voru sem veikastir. Á meðan skipverji var í slíkri einangrun þurfti klefafélagi hans að sofa í sjónvarpsklefa án aðgangs að persónulegum munum sínum.

„Aðstæður skipverja voru því vægast sagt skelfilegar þar sem þeir veiktust einn af öðrum og höfðu ekki aðrar bjargir en verkjalyf til að halda sér gangandi þar sem skipið var við veiðar og vinnslan í gangi. Síðar kom í ljós að lyfjabirgðir voru ekki nægar og þurfti þá að handvelja úr hverjir væru veikastir og þyrftu mest á verkjalyfjum að halda.“

Verkalýðsfélag Vestfirðinga gagnrýnir útgerðina og skipstjóra harðlega og saka um algjört skeytingarleysi í garð skipverja.

Skeytingarleysi útgerðar og/eða skipstjóra gagnvart heilsu og öryggi skipverja í umræddri veiðiferð virðist því hafa verið algert. Skipverjum var bannað að ræða veikindin út á við en máttu ræða við fjölskyldur. Ítrekað var að ræða ekki veikindin og á 3ju viku sjóferðar var sett á algert bann við að minnast á veikindin á samfélagsmiðlum eða við fréttamenn. Þannig var skipverjum haldið nauðugum og veikum við vinnu út á sjó, í brælu og lélegu fiskeríi á meðan Covid sýking herjaði á áhöfnina.

Nú ætlar Verk Vest að leita samstarfs við önnur stéttarfélög sjómanna um borð í Júlíusi Geirmundssyni enda ljóst að brotið hafi verið alvarlega gegn skipverjum. Verk Vest hefur ferið falið umboð frá áhafnarmeðlimum í félaginu til að leita réttar þeirra. Eins kveðst Verk Vest hafa heimild fyrir því að að landað verði úr skipinu á morgun án þess að sótthreinsun hafi farið fram.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala