Hægri slagsíða á Twitter Vésteinn Örn Pétursson skrifar 23. október 2021 09:25 Fulltrúar Twitter vita ekki nákvæmlega hver vegna reikniritið hegðar sér á þennan hátt. Mateusz Slodkowski/SOPA Images/LightRocket via Getty Twitter gerir tístum (e. tweets) frá hægri sinnuðum stjórnmálaflokkum og fréttaveitum hærra undir höfði en þeim sem halla til vinstri. Þetta hefur samfélagsmiðlarisinn rannsakað og staðfest sjálfur, en virðist ekki vita nákvæmlega hvers vegna.
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að Twitter hafi ráðist í rannsókn á því hvernig reiknirit (e. algorithm) miðilsins miðlaði pólitísku efni til notenda sinna. Niðurstaðan var sú að reikniritið var líklegra til þess að mæla með efni sem flokka mætti til hægri við notendur sína. Fulltrúar Twitter segja erfitt að segja til um nákvæmlega hvers vegna reikniritið hagar sér á þennan hátt. Fyrirtækið hefur áður verið gagnrýnt vegna meintrar vinstri slagsíðu sinnar og ritskoðun á efni frá hægri væng stjórnmálanna. Rannsóknin náði til stjórnmálaflokka, fréttaveitna og notenda í sjö löndum: Kanada, Frakklandi, Þýskalandi, Japan, Spáni, Bretlandi og Bandaríkjunum, og náði til milljón tísta frá 1. apríl til 15. ágúst á síðasta ári. Rannsakendur tóku þá tístin sem til skoðunar voru og könnuðu hver þeirra reikniritið tæki og magnaði upp á svokölluðum fréttastraumi notenda (e. news feed) sem reikniritið stjórnar, til samanburðar við straum sem fer eingöngu eftir birtingartíma tísta. Niðurstaðan reyndist sú að hægrisinnaðir stjórnmálaflokkar og fréttaveitur voru líklegri en samsvarandi aðilar á vinstri væng stjórnmálanna til þess að fá tíst sín mögnuð upp hjá reikniritinu, með þeim afleiðingum að þau rötuðu á skjái fleiri notenda. Öfgahugmyndir verða ekki ofan á BBC hefur eftir Rumman Chowdhury hjá Twitter að næsta skref fyrirtækisins væri að komast til botns í því hvers vegna reikniritið hagar sér á þennan hátt. „Í sex af sjö löndum voru tíst frá hægrisinnuðum stjórnmálamönnum mögnuð meira upp en vinstrisinnuðum,“ sagði Chowdhury og bætti við að tíst hægrisinnaðra fréttaveitna væru sömuleiðis mögnuð meira upp af reikniritinu. Twitter leggur þó áherslu á að reikniritið magni ekki upp öfgakennda hugmyndafræði frekar en vinsælar stjórnmálastefnur. Þá kunni ástæða skekkjunnar stafa af mismunandi stefnum stjórnmálaflokkanna þegar kemur að samfélagsmiðlum og því efni sem þeir senda þar út.
Twitter Samfélagsmiðlar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira