Nýsjálenskur galdramaður látinn taka pokann sinn eftir tveggja áratuga starf Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 15. október 2021 11:19 Galdramaðurinn hefur starfað fyrir Christchurch í rúm 20 ár en hefur nú verið látinn fara. Martin Hunter/Getty Galdramaður Nýja-Sjálands, sem er líklega eini galdramaðurinn á launaskrá hins opinbera í heiminum, hefur verið látinn taka pokann sinn eftir 23 ára starf.
Galdramaðurinn, sem heitir réttu nafni Ian Brackenbury Channell og er 88 ára gamall, hefur í rúma tvo áratugi starfað fyrir borgina í Christchurch. Hann hefur sinnt kynningarstörfum fyrir borgina og jafnframt sinnt skyldum sínum fyrir borgina sem galdramaður. Fyrir það hefur Channell verið á launaskrá hjá borginni og fengið 16 þúsund Bandaríkjadali ár hvert í laun, eða rétt rúmar tvær milljónir króna. Á sínum rúma tuttugu ára starfsferli hjá borginni hefur hann því þegið 368 þúsund Bandaríkjadali að launum, eða 47,5 milljónir króna. Galdramaðurinn fæddist í Englandi og fór að sýna galdralistir sínar stuttu eftir að hann flutti til Nýja-Sjálands árið 1976. Þegar borgarstjórnin í Christchurch gerði tilraunir til að stöðva galdrana hópuðust borgarbúar saman og mótmæltu. Árið 1990 lagði Mike Moore, þáverandi forsætisráðherra landsins, það til að Channell yrði opinber Galdramaður Nýja-Sjálands. Síðan þá hefur hann stundað galdra opinberlega í Christchurch og dansað regndansa fyrir nýsjálensk og áströlsk yfirvöld þegar þurrkatíð hefur herjað á. Árið 2009 fékk hann heiðursviðurkenningu Elísabetar Bretadrottningar. Galdramaðurinn hefur undanfarin ár verið gagnrýndur fyrir ummæli sem hann hefur látið falla um konur. Til að mynda sagði hann í þætti sem sýndur var í apríl síðastliðnum á Stöð 3 í Nýja-Sjálandi að honum þætti skemmtilegt að „stríða konum“ með því að segja þeim að þær væru „lævísar“ og að þær notuðu „bolabrögð til að næla sér í menn sem væru vitlausir.“ „Ég elska konur, ég fyrirgef þeim mjög oft. Ég hef enn ekki barið konu. Aldrei berja konu því þær merjast svo auðveldlega, svo kjafta þær í vini sína og nágranna... og þá ertu kominn í klípu.“ Samkvæmt frétt Guardian byggist ákvörðun borgarstjórnarinnar á því að borgin sé að taka nýja stefnu í kynningarmálum. Þau vilji sýna að borgin fagni fjölbreytileikanum og sé nútímaleg borg. Galdramaðurinn segir sjálfur að borgin hafi ákveðið að hætta að borga honum því hann passi ekki inn í „stemningu“ borgarinnar. Hann sé alltaf að ögra, sem borgarstjórnin vilji ekki lengur.
Nýja-Sjáland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Sjá meira