Heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til Raleigh-Durham í Norður-Karólínu Kristján Már Unnarsson skrifar 13. maí 2022 11:20 Hjónin Peggy Helgason og Sigurður Helgason við komuna til Raleigh í gærkvöldi. KMU Hjónin Peggy Oliver Helgason og Sigurður Helgason voru sérstakir heiðursgestir í fyrsta flugi Icelandair til borganna Raleigh og Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær. Þetta er í fyrsta sinn í fjögur ár sem Icelandair kynnir nýjan áfangastað.
Svo skemmtilega vill til að þau Peggy og Sigurður kynntust einmitt í Norður-Karólínu þegar þau stunduðu þar nám við sama háskólann. Þá er Raleigh einnig heimabær Peggy. Sigurður var forstjóri Flugleiða, síðar Icelandair, á árunum 1985 til 2005, og hafði áður verið í stjórnunarstöðum innan félagsins. Hann tengdist félaginu meira og minna í 43 ár og var síðast stjórnarformaður Icelandair Group til ársins 2017. Peggy, sem er iðjuþjálfi að mennt, hefur einnig komið að málefnum Icelandair en hugmyndin að stofnun styrktarsjóðsins Vildarbarna Icelandair kom frá henni og hefur hún síðan verið helsti drifkrafturinn á bak við sjóðinn. Hjónin hafa bæði setið í stjórn hans en markmiðið er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til að fara í draumaferð. Árið 2017 var Peggy sæmd fálkaorðunni fyrir störf að málefnum veikra barna á Íslandi. Icelandair mun fljúga fjórum sinnum í viku til Raleigh-Durham, á þriðjudögum, fimmtudögum, laugardögum og sunnudögum, frá 12. maí til 30. október. Flugstjóri í þessu fyrsta flugi var Þórarinn Hjálmarsson. Hér er hann, annar frá vinstri, með áhöfn sinni við brottförina frá Keflavík síðdegis í gær ásamt Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair og Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra þjónustu og markaðsmála.Icelandair „Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi og Raleigh-Durham er áfangastaður sem smellpassar inn í leiðakerfi okkar. Norður-Karólína er spennandi svæði fyrir Íslendinga að heimsækja auk þess sem flug okkar opnar mjög hentugar tengingar fyrir íbúa Norður-Karólínu, bæði til Íslands og áfram til fjölda áfangastaða í Evrópu,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, í frétt frá félaginu. „Eftir því sem áhrif heimsfaraldursins hafa dvínað höfum við byggt flugstarfsemina hratt upp. Á árinu höfum við hafið flug á ný til fjölda kunnuglegra borga en nú kynnum við til sögunnar nýjan áfangastað í fyrsta sinn síðan 2018,“ segir Bogi ennfremur. Í tilkynningu félagsins segir að nágrannaborgirnar Raleigh og Durham hafi vaxið hratt undanfarin ár. Norður-Karólína hafi upp á margt að bjóða; spennandi söfn, fallegar gönguleiðir, glæsilega golfvelli og suðrænan sjarma.
Icelandair Bandaríkin Ferðalög Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Tengdar fréttir Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. 12. janúar 2022 09:23 Icelandair flýgur til Norður-Karólínu Icelandair hefur bætt áfangastaðnum Raleigh-Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum við leiðarkerfi sitt. Flogið verður þangað fjórum sinnum í viku næsta sumar á tímabilinu 12. maí til 30. október. 16. desember 2021 16:34 Tuttugu börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur 19. apríl 2018 14:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Viðskipti innlent „Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Atvinnulíf Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Krónísk óstundvísi: Skýringar og góð ráð Atvinnulíf Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Viðskipti innlent Þarf að greiða kortareikninginn og meira til í málskostnað Neytendur Tekjur Apple drógust saman enn eina ferðina Viðskipti erlent Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Samstarf Aukið öryggi í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Samstarf Fleiri fréttir Ballið búið fyrir fullt og allt á B5 Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Háttsemi dómara ekki saknæm og Isavia fær því enga milljarða Mímir nýr forstöðumaður hjá Högum Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli Röntgen Domus og Orkuhúsið fá ekki að sameinast Viljinn tekinn til gjaldþrotaskipta Spá því að stýrivextir haldist óbreyttir Bein útsending: Ársfundur SFS – Best í heimi? Mun bjóða upp á sömu flugáætlun og Bláfugl áður Grindvíkingar borgi allt að þriðjungi hærri leigu en aðrir Guðný og Sigurður Helgi til SI Tekur við stöðu sviðsstjóra Netöryggismiðstöðvar Íslands Hagnaður Íslandsbanka 5,4 milljarðar á fyrsta fjórðungi Arnar Már nýr aðstoðarforstjóri Vinnunetföng algeng leið fyrir hakkara til að brjótast inn í íslensk fyrirtæki Sjö vilja taka við af Gunnari Hagnaður Landsbankans nam 7,2 milljörðum á fyrstu þremur mánuðum ársins Frumkvöðlar koma saman í Kolaportinu Hefja sölu á íbúðum á Orkureitnum Bein útsending: Stærri styrktækifæri í mannvirkjaiðnaði Lokar Önnu Jónu og segir það mikinn létti Hagnaður Arion dróst saman um tvo milljarða Hefja úthlutun lóða í Vatnsendahvarfi Ráðherra bað um tíu milljarða króna í viðbót í arð Bein útsending: Eftirfylgni við Stöðugleikasamninginn Landa stórum sölusamningi Reginn afturkallar samrunatilkynningu við Eik Vextir verði ekki lækkaðir fyrr en í haust Hafa tryggt útgáfu íslenska tölvuleiksins Island of Winds Sjá meira
Bæta fjórum áfangastöðum við leiðakerfið Icelandair hefur birt upplýsingar um sumaráætlun sína og hafa fjórir áfangastaðir bæst við leiðakerfið – Róm á Ítalíu, Nice í Frakklandi, Alicante á Spáni og Montreal í Kanada. 12. janúar 2022 09:23
Icelandair flýgur til Norður-Karólínu Icelandair hefur bætt áfangastaðnum Raleigh-Durham í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum við leiðarkerfi sitt. Flogið verður þangað fjórum sinnum í viku næsta sumar á tímabilinu 12. maí til 30. október. 16. desember 2021 16:34
Tuttugu börn og fjölskyldur þeirra fengu ferðastyrk Vildarbarna Icelandair í dag Í hverjum styrk frá sjóðnum felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess, og er allur kostnaður greiddur 19. apríl 2018 14:19