Millwall bjargaði stigi undir lokin | Lærisveinar Rooney á sigurbraut Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. febrúar 2021 21:45 Úr leik Luton Town og Millwall. Justin Setterfield/Getty Images Landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall sem heimsótti Luton Town í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en mark Millwall kom á sjöttu mínútu uppbótartíma.
Landsliðsframherjinn Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Millwall sem heimsótti Luton Town í ensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli en mark Millwall kom á sjöttu mínútu uppbótartíma. Þá vann Derby County góðan 2-0 sigur á Huddersfield Town. Jón Daði var í stöðu vinstri vængmanns í 3-4-3 leikkerfi Millwall í kvöld. Líkt og aðrir leikmenn Millwall tókst honum ekki að brjóta varnarmúr heimamanna og var íslenski framherjinn tekinn af velli á 75. mínútu er Gary Rowett reyndi að hrista upp í hlutunum. Að lokum var það miðvörðurinn George Evans sem jafnaði metin í blálokin eða á sjöttu mínútu viðbótartíma. Lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Jón Daði og félagar sitja nú í 11. sæti með 43 stig. Sigur Derby var þriðji sigur liðsins í síðustu fjórum leikjum en liðið tapaði gegn Watford í síðustu umferð. David Marshall átti frábæra markvörslu í stöðunni 0-0 og hjálpaði það Derby að landa þremur stigum en George Edmundson skoraði fyrsta mark leiksins á 22. mínútu og Martyn Waghorn tvöfaldaði forystuna um miðjan síðari hálfleik. Lokatölur 2-0 og heldur áfram að lyfta sér upp töfluna. Hrútarnir eru komnir upp í 18. sæti deildarinnar, sjö stigum fyrir ofan fallsæti. Segja má að deildin sé einkar þétt en Bournemouth er í 6. sæti með 49 stig eða 12 stigum meira en Derby. Clean sheet Three pointsA great start to the week! pic.twitter.com/Gh9gzE3RAs— Derby County (@dcfcofficial) February 23, 2021 Önnur úrslit í kvöld Birmingham City 1-3 Norwich City Middlesbrough 1-3 Bristol City Rotherham 0-1 Nottingham ForestWycombe Wanderers 1-0 Reading
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Körfubolti Courtois ekki með Belgíu á EM Fótbolti „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ Handbolti Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys Handbolti „Breytir einvíginu ansi mikið“ Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Handbolti Martin meiddist og á leið upp á sjúkrahús Körfubolti Fleiri fréttir Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Sjá meira