Talibanar aðskilja háskólanema eftir kyni Vésteinn Örn Pétursson skrifar 12. september 2021 17:52 Frá göngum háskólans í Kabúl, höfuðborg Afganistan. Konum verður gert að hylja sig innan veggja háskólanna á grundvelli nýju reglnanna. AP Photo/Felipe Dana Afganskir stúdentar verða aðskildir eftir kyni og nýjar reglur um klæðaburð í háskólum verða settar í landinu. Þetta tilkynntu Talibanar í dag og sögðu að konum í landinu verði leyft að mennta sig, en ekki á sama stað og karlar.
Breska ríkisútvarpið greinir frá þessu og vitnar í Abdul Baqi Haqqani, menntamálaráðherra Talibana, sem ráða nú ríkjum í Afganistan. Í valdatíð þeirra á árunum 1996 til 2001 var konum með öllu bannað að ganga í háskóla. Haqqani sagði þá að til stæði að endurskoða hvaða fög eru kennd í afgönskum háskólum. Í síðasta mánuði tóku Talibanar völdin í Afganistan eftir mikla sókn, sem stóð yfir samhliða því að Bandaríkjaher dró úr umsvifum sínum í landinu. Bandaríkin réðust inn í Afganistan árið 2001 en hafa nú dregið sig þaðan út, 20 árum síðar. Nýju reglurnar kveða þá á um að konum í háskólum verði gert að klæðast andlitsslæðum. Stúdentum í Afganistan var fyrir valdatöku Talibana í sjálfsvald sett hvernig þeir voru til fara í skólanum og karlar og konur máttu mennta sig á sömu stofnununum. Tjöld og tækni BBC hefur eftir Haqqani að það verði engum vandkvæðum bundið að fá Afgani til þess að hlíta reglunum. „Það er ekki vandamál að binda endi á þetta blandaða menntafyrirkomulag. Þetta fólk er múslimar og mun samþykkja þetta,“ sagði hann. Með breytingunni verður fyrirkomulagið á þann veg að kennarar eiga almennt að vera af sama kyni og nemendurnir sem þeir kenna. Borið hefur á áhyggjum af því að fyrirkomulagið myndi í reynd útiloka konur frá því að sækja sér háskólamenntun í landinu, sökum skorts á kvenkyns kennurum. Haqqani er þessu ósammála og segir aðrar lausnir í sjónmáli. „Þetta fer allt eftir afkastagetu háskólans. Við getum líka látið karlkyns kennara kenna fyrir aftan tjald, eða stuðst við tækni.“
Afganistan Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stærsti skjálftinn 3,5 að stærð Innlent Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Innlent Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Erlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Til vandræða á hóteli og réðst svo á mann við Hlemm Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Karlar líklegri að ljúga á kostnað annarra Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Hafi orðið fyrir þrýstingi úr ólíkum áttum Innlent Fleiri fréttir Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Sjá meira