Tveir látnir eftir að flugvél brotlenti í úthverfi

Cessna 340.
Cessna 340. Wikipedia/Peter Bakema

Að minnsta kosti tveir eru látnir og tveir slasaðir eftir að lítil flugvél brotlenti í úthverfi Santee í Suður-Kaliforníu, auk þess kviknaði í tveimur húsum. AP fréttastofan greinir frá.

Ekki er vitað hvort að fórnarlömbin voru á jörðu niðri eða um borð í vélinni þegar vélin brotlenti fyrr í dag. 

Slökkviliðsstjórinn Justin Matsushita sagði tvo hafa látist á vettvangi og að tveir hefðu verið lagðir inn á sjúkrahús. Ekki er vitað um ástand þeirra. Tvö heimili og fjöldi ökutækja eyðulögðust í eldsvoðanum sem fylgdi brotlendingunni. Búið er að slökkva eldinn.

Að sögn íbúa á svæðinu urðu nágrannar að draga móður hans út úr brennandi heimili hennar og björguðu þeir stjúpföður hans úr bakgarðinum. 

Vélin sem brotlenti var tveggja hreyfla Cessna C340 að sögn bandarísku flugmálastjórnarinnar.

Ekki er vitað hvaðan vélin var að koma eða hvert hún stefndi, né hversu margir farþegar voru um borð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert