Stéphanie Frappart frá Frakklandi mun dæma stórleik Íslands og Svíþjóðar í undankeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu í Gautaborg á þriðjudaginn. Frappart þykir einn besti kvendómari heims.
Leikurinn gegn Svíþjóð er hreinn úrslitaleikur um toppsætið í riðlinum sem gefur þátttökurétt á Evrópumótinu 2022. Það er því mikið undir og þessi dómaraútnefning ber þess merki.
Frappart hefur nokkrum sinnum brotið blað í sögu dómara innan knattspyrnunnar. Hún dæmdi fyrst kvenna í efstu deild karla í Frakklandi og var sömuleiðis sú fyrsta til að dæma leikinn um stórbikar Evrópu þegar Chelsea og Liverpool mættust í Istanbúl í fyrra. Þá dæmdi hún úrslitaleik HM kvenna á síðasta ári milli Bandaríkjanna og Hollands.
Frappart dæmdi ennfremur leik Leicester City og Zorya Luhansk í Evrópudeild karla síðasta fimmtudag og varð þar með fyrst kvenna til að dæma leik í riðlakeppninni. Áður hefur hún dæmt í undankeppni Evrópudeildarinnnar og m.a. viðureign Möltu og Lettlands í Þjóðadeild UEFA.