Facebook-hakkið hafi ekki áhrif á rannsóknina Jón Þór Stefánsson skrifar 30. apríl 2024 17:56 „Hún gengur sinn vanagang, eftir sem áður,“ segir Grímur um rannsóknina sem beinist meðal annars að Quang Le sem einnig gengur undir nafninu Davíð Viðarsson. Litlar líkur eru á því að innbrot á Facebook-síðu Quangs Le, sem gengur einnig undir nafninu Davíð Viðarsson, hafi áhrif á sakamálarannsókn lögreglu á hendur honum.
Þetta sagði Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, í Reykjavík síðdegis í dag. „Hún gengur sinn vanagang, eftir sem áður,“ segir Grímur um rannsóknina. Quang Le er einn sakborninga í umfangsmikilli rannsókn lögreglu á vinnumansali, peningaþvætti og skipulagðri glæpastarfsemi í tengslum við þrifafyrirtækið Vy-þrif og veitingastaðina Pho Vietnamese og Wok On. Þá heldur lögregla enn opnum möguleikanum á að fíkniefnasala eða -framleiðsla tengist málinu. Um hádegisleytið í dag byrjuðu óvenjulegar færslur að birtast á Facebook-síðu Quangs Le. Í kjölfarið var ljóst að einhver óprúttinn aðili hafði brotist inn á síðuna og byrjað að birta færslur. Í umræddum færslum eru ríkisstjórnarflokkarnir, Krónan, Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, World Class og samstarfsmenn Quang Le gagnrýndir harðlega. Þá voru samskipti Quang Le og vinar hans birt opinberlega þar sem þeir birta myndir teknar á líkamsræktarstöðvum og sýna afturenda kvenna. Grímur segist ekki geta tjáð sig um hvort lögreglan hafi verið búin að afla gagna af Facebook-síðu Quangs, en almennt séð sé lögreglan búin að afla ákveðinna rannsóknargagna á þessu stigi málsins. Hann man ekki til þess að maður sem sætir rannsókn hafi lent í einhverju sambærilegu áður. Þá segist hann ekki hafa þekkingu á því hvort sambærileg mál hafi komið upp erlendis. Grímur segir að innbrot sem þetta á Facebook-síðu einstaklings geti orðið að lögreglumáli, og það þurfi að taka til skoðunar í þessu tilfelli. Það eru engar upplýsingar þarna í samskiptum hans við einhverja aðra sem gæti verið óþægilegt eða slæmt að fá fram í dagsljósið? „Það er auðvitað mögulegt, og þá er ég að tala almennt séð. Gögn, sem geta verið rannsóknargögn í sakamáli, ef þau komast fyrir sjónir almennings áður en málið kemur til dóms þá getur það haft afleiðingar.“ Grímur segir að rannsókn á mansalsmálinu gangi mjög vel. Þó séu margir þættir rannsóknarinnar tímafrekir, líkt og samskipti við erlend lögregluyfirvöld og yfirheyrslur með túlki. Lögreglan hafi verið að óska eftir upplýsingum frá lögregluyfirvöldum í Víetnam, og þá segir Grímur að í málum sem þessum leiti lögreglan gjarnan aðstoðar til stofnanna líkt og Europol og Interpol.
Lögreglumál Mál Davíðs Viðarssonar (Quang Le) Samfélagsmiðlar Netglæpir Netöryggi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Biden segir Ísraela saklausa af ásökunum um þjóðarmorð Erlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fleiri fréttir Lilja fundar með RÚV um „nýlenskuna“ Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Sjá meira