Svona verður EM hjá Íslandi vinnist leikurinn í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2024 08:00 Það var gaman hjá íslenska landsliðinu á síðasta Evrópumóti sumarið 2016 og draumur um annað EM gæti orðið að veruleika í kvöld. EPA/GEORGI LICOVSKI Íslenskir aðdáendur geta byrjað strax að plana ferð til Þýskalands og að finna gistingu í München, Düsseldorf og Stuttgart vinni strákarnir okkar Úkraínu í kvöld. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er einum sigri frá sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í sumar. Það óvenjulega við það er að strákarnir okkar vita nákvæmlega hvað bíður þeirra vinnist leikurinn við Úkraínu í kvöld. Það er nefnilega búið að draga í riðla og stilla öllu Evrópumótinu upp enda aðeins nokkrir mánuðir í fyrsta leik. Það lið sem vinnur leik Íslands og Úkraínu í kvöld lendir í riðli með Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu. Toughest group?#EURO2024 pic.twitter.com/LYCznY09vH— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) December 3, 2023 Fyrsti leikur þess liðs fer fram á sjálfan Þjóðhátíðardaginn. Leikurinn er á móti Rúmeníu 17. júní og verður spilaður á sjálfum Allianz Arena, heimavelli Bayern München. Næsti leikur er fjórum dögum seinna, 21. júní, á móti Slóvakíu en sá leikur er spilaður á Merkur Spiel-Arena í Düsseldorf. Sá leikvangur hýsti einmitt leiki í úrslitakeppni EM í handbolta í janúar. Lokaleikur liðsins í riðlinum er síðan á móti Belgíu á MHPArena í Stuttgart 26. júní. Liðið fær því einn dag auka til að jafna sig á milli leikja. Við Íslendingar þekkjum þennan leikvang kannski mest sem Neckarstadion en þar réði Ásgeir Sigurvinsson ríkjum á níunda áratugnum og vann þýska meistaratitilinn vorið 1984. Tvö efstu liðin í riðlinum vita hvar þau spila í sextán liða úrslitunum en svo gæti líka farið að liðið í þriðja sæti fari áfram. Það kemur ekki ljós fyrr en allir leikir hafa spilast. Sigurvegari riðilsins spilar á Allianz Arena í München en liðið í öðru sæti á leik í Düsseldorf. Stuttgart, 22 March Munich, 14 May Fans across Germany's 10 host cities will get a chance to see the Henri Delaunay Cup up close with the #EURO2024 Trophy Tour More details — UEFA EURO 2024 (@EURO2024) March 13, 2024 Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10. EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Fótbolti „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Fleiri fréttir Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Sjá meira
Íslenska karlalandsliðið í fótbolta er einum sigri frá sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins í sumar. Það óvenjulega við það er að strákarnir okkar vita nákvæmlega hvað bíður þeirra vinnist leikurinn við Úkraínu í kvöld. Það er nefnilega búið að draga í riðla og stilla öllu Evrópumótinu upp enda aðeins nokkrir mánuðir í fyrsta leik. Það lið sem vinnur leik Íslands og Úkraínu í kvöld lendir í riðli með Belgíu, Slóvakíu og Rúmeníu. Toughest group?#EURO2024 pic.twitter.com/LYCznY09vH— UEFA EURO 2024 (@EURO2024) December 3, 2023 Fyrsti leikur þess liðs fer fram á sjálfan Þjóðhátíðardaginn. Leikurinn er á móti Rúmeníu 17. júní og verður spilaður á sjálfum Allianz Arena, heimavelli Bayern München. Næsti leikur er fjórum dögum seinna, 21. júní, á móti Slóvakíu en sá leikur er spilaður á Merkur Spiel-Arena í Düsseldorf. Sá leikvangur hýsti einmitt leiki í úrslitakeppni EM í handbolta í janúar. Lokaleikur liðsins í riðlinum er síðan á móti Belgíu á MHPArena í Stuttgart 26. júní. Liðið fær því einn dag auka til að jafna sig á milli leikja. Við Íslendingar þekkjum þennan leikvang kannski mest sem Neckarstadion en þar réði Ásgeir Sigurvinsson ríkjum á níunda áratugnum og vann þýska meistaratitilinn vorið 1984. Tvö efstu liðin í riðlinum vita hvar þau spila í sextán liða úrslitunum en svo gæti líka farið að liðið í þriðja sæti fari áfram. Það kemur ekki ljós fyrr en allir leikir hafa spilast. Sigurvegari riðilsins spilar á Allianz Arena í München en liðið í öðru sæti á leik í Düsseldorf. Stuttgart, 22 March Munich, 14 May Fans across Germany's 10 host cities will get a chance to see the Henri Delaunay Cup up close with the #EURO2024 Trophy Tour More details — UEFA EURO 2024 (@EURO2024) March 13, 2024 Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.
Leikur Úkraínu og Íslands verður sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þriðjudaginn 26. mars. Leikurinn hefst klukkan 19.45 en upphitun fyrir leikinn hefst klukkan 19.10.
EM 2024 í Þýskalandi Landslið karla í fótbolta Mest lesið Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal Íslenski boltinn Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Fótbolti Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Fótbolti Meistararnir úr leik eftir stærstu endurkomu sögunnar Körfubolti Endurkoma í lagi hjá BKG og elleftu heimsleikarnir í röð Sport Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Íslenski boltinn Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Enski boltinn Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Enski boltinn „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Fótbolti „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Handbolti Fleiri fréttir Besiktas segist vera að ræða við Mourinho „Rúnar skilur fótbolta og skilur fólk“ Guardiola um framtíðina: Nær því að hætta en vera áfram Mark Quansah fyrir Liverpool bætti markametið Gamli Íslandsvinurinn kraftaverkamaður í Mainz Hefur fest rætur á Íslandi eftir örlagaríkt símtal „Við erum búnir að skrifa okkur í sögubækurnar“ Kristján Guðmundsson: Aldrei brot og mjög slök frammistaða hjá dómurum leiksins Hákon skoraði en Lille er á leið í umspil Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 3-4 | Rangur dómur réði úrslitum í framlengingu Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Sjá meira