Rafíþróttir

Stórmeistaramótið í beinni: Barist um sæti í úrslitum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
329739416_2201807086670767_1710189005877167372_n

Stórmeistaramót Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO er í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi. 

Undanúrslitin fara fram í kvöld þar sem fjögur lið berjast um tvö laus sæti í úrslitunum sjálfum sem fara fram á morgun.

Fyrri leikur kvöldsins er viðureign Atlantic Esports og Dusty, en Dusty tryggði sér deildarmeistaratitilinn á dögunum og hefur einokað þá titla sem í boði eru í íslensku CS:GO-senunni undanfarin ár. Atlantic var þó í harðri baráttu við Dusty fram á seinasta dag í deildinni þetta tímabilið og því verður áhugavert að sjá hvort liðinu takist að skáka sigursælasta rafíþróttaliði Íslands.

Það eru svo Þór og FH sem mætast í hinni undanúrslitaviðureigninni klukkan 20:30. Þórsarar voru einnig í baráttunni um deildarmeistaratitilinn fram á seinustu umferð, en FH-ingar voru í pakkanum sem barðist um fjórða sætið.

Undanúrslitin í kvöld og úrslitin á morgun verða að sjálfsögðu sýnd á risaskjá á Arena Gaming, þjóðarleikvangi rafíþrótta á Íslandi, en leikirnir verða einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og í spilaranum hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×